Blik 1959/Þulur í 37 ár

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2013 kl. 21:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2013 kl. 21:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1959



Þulur í 37 ár



Stefán Árnason, eftir að hann útvegaði sér glimskrattatrektina, tækni þess tíma, sem hann notaði í mörg ár, því að ekkert betra var fáanlegt. Myndin er tekin 1924.

ctr

Stefán Árnason, yfirlögregluþjónn, hefur verið þulur Þjóðhátíðar Vestmannaeyja í 37 ár, eða síðan 1922. Hann hefur þótt gera það með ágætum, enda er Stefán góðum gáfum gæddur á sviði leiklistar. Ef það er satt, að hann hafi innt þetta starf af hendi endurgjaldslaust öll þessi ár, þá er það ekki lítið þegnskyldustarf í þágu íþróttafélaganna og alls almennings og ef til vill margur fengið fálkaorðuna fyrir minna.
Margt fyndið orð hefur fokið af vörum Stefáns Árnasonar í þularstarfi hans öll þessi ár. Þess er minnzt hér í Bliki nú með nokkrum vísum.




Við gerum hér Stefáni Árnasyni upp orðið eftir heyrt og séð:

Fyrri
þjóðhátíðardagur
Nú er hátíð hugum í,
hagstæð ljátíð gengin.
Tröllin fátíð finna að því,
að fólks er vátíð engin.


Því skal halda í Herjólfsdal
há skal alda rísa
gleði; tjalda í töfrasal,
teitifalda hýsa.


Síðari
þjóðhátíðardagur
Lag: Komir þú á Grænlandsgrund.
Halló, menn og fögur fljóð,
fátt er nú, sem heftir,
nælonsokk og nátthöld góð
nóttin skildi eftir.


Teygjubönd og tanngarðar,
tyggigúm og lokkar,
drósahöld og duftfarðar
Dalinn þakti okkar.


Sem sé: Fundizt feiknin öll,
fráleitt nokkur hrekkur,
inn um Dal og út um völl
og upp um hlíðar-brekkur.


Komið hingað kappafans,
konur, börn og meyjar,
sækið fundið. Síðan dans
svarri um Vestmannaeyjar.