Bjarni Sighvatsson (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2022 kl. 12:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2022 kl. 12:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Bjarni Sighvatsson. '''Bjarni Sighvatsson''' frá Ási við Kirkjuveg 49, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, verkstjóri, stjórnarformaður fæddist 2. desember 1932 og lést 9. október 2018.<br> Foreldrar hans voru Sighvatur Bjarnason frá Stokkseyri, skipstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 27. október 1903 í Útgörðum þar, d. 15. nóvember 1975, og kona hans Guðmunda...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Bjarni Sighvatsson.

Bjarni Sighvatsson frá Ási við Kirkjuveg 49, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, verkstjóri, stjórnarformaður fæddist 2. desember 1932 og lést 9. október 2018.
Foreldrar hans voru Sighvatur Bjarnason frá Stokkseyri, skipstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 27. október 1903 í Útgörðum þar, d. 15. nóvember 1975, og kona hans Guðmunda Torfadóttir frá Hnífsdal, húsfreyja, f. þar 22. apríl 1905, d. 27. september 1983.

Börn Guðmundu fyrir hjónaband:
1. Kristjana Valgerður Jónsdóttir, f. 2. október 1926 á Ísafirði, d. 20. október 2011.
2. Guðríður Gilsdóttir Kinloch, f. 31. desember 1927 í Reykjavík, d. 19. maí 2011.
3. Haukur Guðmundsson, f. 25. október 1929 í Reykjavík, d. 3. september 1991.

Börn Guðmundu og Sighvatar:
4. Margrét Sighvatsdóttir, f. 28. júlí 1931 í Ási, d. 15. nóvemer 2009.
5. Bjarni Sighvatsson, f. 2. desember 1932 í Ási, d. 9. október 2018.
6. Sigurður Arnar Sighvatsson, f. 6. ágúst 1934 í Ási.
7. Guðbjartur Richarð Sighvatsson, f. 10. janúar 1937 í Ási.
8. Hrefna Sighvatsdóttir, f. 23. júlí 1939 í Ási.
9. Sighvatur Sighvatsson, f. 30. júní 1942 í Ási, d. 26. mars 1955.
10. Magnús Torfi Sighvatsson, f. 19. ágúst 1944 í Ási, d. 20. mars 2002.
11. Jón Sighvatsson, f. 25. maí 1946 í Ási.

Bjarni var með foreldrum sínum í æsku.
Hann var í Sjómannaskólanum í Reykjavík 1954.
Bjarni var sjómaður frá 14 ára aldri, var háseti, kokkur, stýrimaður og skipstjóri, vann síðar við útgerð og fiskvinnslu í Eyjum.
Hann byggði upp fiskvinnslu Fjölnis snemma á sjöunda áratug 20. aldar og gerði jafnframt út Hamraberg VE, Kristbjörgu VE og Sigurfara VE.
Hann varð verkstjóri og stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar 1986-1994.
Bjarni rak nokkurn áhugabúskap í Þorlaugargerði.
Þau Dóra giftu sig 1953, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Brimhólabraut 9.
Dóra lést 2007 og Bjarni 2018.

I. Kona Bjarna, (23. maí 1953), var Dóra Guðlaugsdóttir frá Geysi, húsfreyja, bóksali, f. 29. desember 1934, d. 26. nóvember 2007.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Bjarnadóttir húsfreyja, f. 6. október 1954. Maður hennar Páll Sveinsson.
2. Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir húsfreyja, f. 8. september 1956. Maður hennar Viðar Elíasson.
3. Sighvatur Bjarnason, f. 4. janúar 1962. Kona hans Ragnhildur S. Gottskálksdóttir.
4. Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir, f. 2. september 1970. Maður hennar Halldór Arnarson.
5. Hinrik Örn Bjarnason, f. 15. september 1972. Kona hans Anna Jónína Sævarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 20. október 2018. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.