Björn Kristjánsson (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. febrúar 2016 kl. 18:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. febrúar 2016 kl. 18:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Kristjánsson vinnumaður víða í Eyjum fæddist um 1825, líklega í Skagafirði og lést 19. maí 1891 í Brekkuhúsi.

Björn var 10 ára tökubarn í Fagranesi á Reykjaströnd í Skagafirði 1835, léttadrengur á Ríp í Hegranesi 1840. Hann var vinnumaður á Þórkötlustöðum í Grindavík 1855.
Björn fluttist úr Stóra-Dalssókn u. Eyjafjöllum að Dölum 1859, var þar vinnumaður 1859, í Sjólyst 1860, síðan víða, á Vilborgarstöðum, á Löndum, á Oddsstöðum í Draumbæ, síðast í Brekkuhúsi og þar lést hann 1891 á sveit.
Björn var ókvæntur í Eyjum.

I. Barnsmóðir hans var Sigríður Jónsdóttir, þá vinnukona í Nöjsomhed.
Barn þeirra var
1. Andvana fætt stúlkubarn 6. desember 1859.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.