„Björn H. Jónsson (skólastjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Árið 1914 þurfti [[Steinn Sigurðsson (skólastjóri)|Steinn Sigurðsson]] skólastjóri í Vestmannaeyjum frá að hverfa. Björn Hermann var þá einn af þeim átta sem sóttu um stöðuna. Hlaut hann hana með atkvæðum allrar skólanefndarinnar. Björn var [[Barnaskóli Vestmannaeyja|skólastjóri]] í Vestmannaeyjum í 6 ár. Hann var áhrifaríkur og ötull og áhugasamur hugsjónamaður.

Menntun: Gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1907. Stundaði nám í sögu, bókmenntasögu og bókfærslu við Napstjert í Danmörku samhliða skrifstofustörfum 1909 til 1911. Námskeið í garðyrkju í Brorup Husmandskole 1911. Nám í framhaldsdeild Frederiksborg Höjskole 1911 til 1912 og framhaldslýðskóla í Askov 1912 til 1914.
== Menntun ==
Gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1907. Stundaði nám í sögu, bókmenntasögu og bókfærslu við Napstjert í Danmörku samhliða skrifstofustörfum 1909 til 1911. Námskeið í garðyrkju í Brorup Husmandskole 1911. Nám í framhaldsdeild Frederiksborg Höjskole 1911 til 1912 og framhaldslýðskóla í Askov 1912 til 1914.

Starfsferill: Kennari við skóla í Vestur-Húnavatnssýslu veturna 1907 til 1909. Fór síðan til náms eins og að framan segir. Skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja 1914 til 1920 og hélt jafnframt kvöldskóla fyrir unglinga alla veturna nema 1917 til 1918.
== Starfsferill ==
Kennari við skóla í Vestur-Húnavatnssýslu veturna 1907 til 1909. Fór síðan til náms eins og að framan segir. Skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja 1914 til 1920 og hélt jafnframt kvöldskóla fyrir unglinga alla veturna nema 1917 til 1918.
1920 til 1924 stóð hann fyrir alþýðuskóla í Hjarðarholti í Dölum, en flutti til Ísafjarðar 1924. Kennari og síðar skólastjóri við Barnakólann á Ísafirði árið 1930. Þá var Björn einnig skólastjóri iðnskólans á Ísafirði og gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir Ísafjarðarsýslur. Hann lést 4. júní 1962.

Útgáfa síðunnar 20. júní 2007 kl. 13:33

Björn Hermann Jónsson fæddist 24. júní 1888 í Miðfirði og lést í Reykjavík 5. júni 1962, 73 ára að aldri. Foreldrar hans voru: Jón Jónsson bóndi á Núpsdal í Miðfirði, fæddur 29. janúar 1855, dáinn 28. maí 1955, og kona hans Ólöf Jónasdóttir frá Svarðbæli í Miðfirði, fædd 30. janúar 1862, dáin 29. júní 1943.

Björn ólst upp hjá foreldrum sínum þar til hann var 19 ára. Þá hvarf hann til náms í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði þar sem hann lauk gagnfræðaprófi 1907. Árið 1909 fór Björn til Danmerkur til framhaldsnáms þar sem hann dvaldist í 5 ár. Björn Hermann kvæntist Jónínu G. Þórhallsdóttur 30. apríl 1915.Börn þeirra eru: Ólafur, fæddur 14. nóvember 1915, dáinn 19. janúar 1968. Svava, fædd 2. desember 1921, dáin 26. september 1965. Jón, fæddur 3. ágúst 1924, dáinn 7. maí 1971 og Haraldur fæddur 4. ágúst 1926, dáinn 31. júlí 1963.

Árið 1914 þurfti Steinn Sigurðsson skólastjóri í Vestmannaeyjum frá að hverfa. Björn Hermann var þá einn af þeim átta sem sóttu um stöðuna. Hlaut hann hana með atkvæðum allrar skólanefndarinnar. Björn var skólastjóri í Vestmannaeyjum í 6 ár. Hann var áhrifaríkur og ötull og áhugasamur hugsjónamaður.

Menntun

Gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1907. Stundaði nám í sögu, bókmenntasögu og bókfærslu við Napstjert í Danmörku samhliða skrifstofustörfum 1909 til 1911. Námskeið í garðyrkju í Brorup Husmandskole 1911. Nám í framhaldsdeild Frederiksborg Höjskole 1911 til 1912 og framhaldslýðskóla í Askov 1912 til 1914.

Starfsferill

Kennari við skóla í Vestur-Húnavatnssýslu veturna 1907 til 1909. Fór síðan til náms eins og að framan segir. Skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja 1914 til 1920 og hélt jafnframt kvöldskóla fyrir unglinga alla veturna nema 1917 til 1918. 1920 til 1924 stóð hann fyrir alþýðuskóla í Hjarðarholti í Dölum, en flutti til Ísafjarðar 1924. Kennari og síðar skólastjóri við Barnakólann á Ísafirði árið 1930. Þá var Björn einnig skólastjóri iðnskólans á Ísafirði og gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir Ísafjarðarsýslur. Hann lést 4. júní 1962.

Heimildir

  • Reynir Guðsteinsson. Kennaratal á Íslandi. Reykjavík. Prentsmiðjan Oddi hf. 1958-1988. Samtímamenn. Reykjavík. Vaka Helgafell hf. 1993 Íslendingabók.