Birna Björgvinsdóttir (Stað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. maí 2022 kl. 19:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Birna Björgvinsdóttir''' húsfreyja fæddist 7. júní 1940 í Kaupangi við Vestmannabraut 31 og lést 8. febrúar 1995.<br> Foreldrar hennar voru Helgi ''Björgvin'' Magnússon sjómaður, verkamaður f. 26. janúar 1900 í Víkurgerði í Fáskrúðsfirði, d. 25. október 1995, og kona hans Guðrún ''Petra'' Lúðvíksdóttir húsfreyja, f. 17.2.1902 á Kolfreyju á Brimnesi í Fáskrúðsf...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Birna Björgvinsdóttir húsfreyja fæddist 7. júní 1940 í Kaupangi við Vestmannabraut 31 og lést 8. febrúar 1995.
Foreldrar hennar voru Helgi Björgvin Magnússon sjómaður, verkamaður f. 26. janúar 1900 í Víkurgerði í Fáskrúðsfirði, d. 25. október 1995, og kona hans Guðrún Petra Lúðvíksdóttir húsfreyja, f. 17.2.1902 á Kolfreyju á Brimnesi í Fáskrúðsfirði, d. 22. júlí 1961.

Börn Petru og Björgvins:
1. Magnús Friðgeir Björgvinsson sjómaður, f. 3. nóvember 1922 á Fáskrúðsfirði, d. 18. nóvember 2016.
2. Lovísa Guðríður Björgvinsdóttir verkakona, húsfreyja, f. 2. janúar 1924 á Reyðarfirði, d. 29. mars 1979.
3. Jóhann Magnús Björgvinsson sjómaður, f. 6. júní 1928 á Heiði við Sólhlíð 19, d. 14. janúar 2017.
4. Birna Björgvinsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 7. júní 1940 í Kaupangi við Vestmannabraut 31, d. 8. febrúar 1995.
Kjörbarn þeirra var
5. Helga Björgvinsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 27. júlí 1941, d. 1. október 2000. Hún var dóttir Lovísu Guðríðar.

Birna var með foreldrum sínum í æsku, í Kaupangi við Vestmannabraut 31 1940, á Gunnarshólma við Vestmannabraut 37 1941, í Bragga við Urðaveg 1945 og 1949, í Eyvindarholti við Brekastíg 7b.
Þau Pálmi giftu sig, eignuðust fjögur börn, en fyrsta barn þeirra lést á fyrsta ári sínu. Þau bjuggu í Eyvindarholti við Brekastíg 7b 1959, við Brekastíg 23 1960, í Hvíld við Faxastíg 14 1964, á Stað við Helgafellsbraut 10 við Gosið 1973.
Þau fluttu til lands, bjuggu í Keilufelli 30 í Reykjavík 1986.
Pálmi lést 1988 og Birna 1995.

I. Maður Birnu var Pálmi Pétursson frá Akureyri, verkamaður, verkstjóri, f. 5. mars 1940, d. 3. júlí 1988.
Börn þeirra:
1. Drengur, f. 11. júlí 1959, d. 8. september 1959.
2. Björgvin Pálmason, f. 16. október 1960.
3. Karlotta Pálmadóttir, f. 18. september 1961.
4. Guðrún Sólveig Pálmadóttir, f. 5. mars 1964.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.