Bergur M. Sigmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bergur Magnús Sigmundsson bakarameistari fæddist 5. desember 1947 í Tungu við Heimagötu 4.
Foreldrar hans voru Sigmundur Andrésson frá Eyrarbakka, bakarameistari, f. 20. ágúst 1922, d. 16. nóvember 2016, og kona hans Dóra Hanna Magnúsdóttir frá Tungu, húsfreyja, f. 27. júní 1925, d. 30. júní 2013.

Börn Dóru Hönnu og Sigmundar:
1. Dóra Bergs Sigmundsdóttir kjördóttir Sigmundar, húsfreyja, fiskiðnaðarkona, verslunarmaður, ræstitæknir f. 6. nóvember 1944, d. 27. janúar 2018. Maður hennar Sigmar Magnússon.
2. Bergur Magnús Sigmundsson bakarameistari, f. 5. desember 1947. Barnsmóðir hans Guðrún Fanney Júlíusdóttir. Kona hans Vilborg Gísladóttir.
3. Andrés Sigmundsson bakarameistari, bæjarfulltrúi, f. 11. desember 1949. Fyrrum kona hans Hrafnhildur Ástþórsdóttir. Fyrrum kona hans Þuríður Freysdóttir.
4. Óskar Sigmundsson sölustjóri, framkvæmdastjóri í Þýskalandi, f. 7. maí 1964. Kona hans Oddný Huginsdóttir.

Bergur var með foreldrum sínum.
Hann varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1963, lærði bakaraiðn, varð bakarameistari.
Bergur vann við iðn sína.
Hann eignaðist barn með Guðrúnu Fanney 1967.
Þau Vilborg giftu sig 1971, eignuðust tvö börn og Vilborg átti eitt barn áður. Þau bjuggu við Dverghamar 4, búa við Áshamar 75.

I. Barnsmóðir Bergs er Guðrún Fanney Júlíusdóttir, f. 1. janúar 1950.
Barn þeirra:
1. Magnús Bergsson, f. 27. nóvember 1967.

II. Kona Bergs, (2. desember 1972), er Vilborg Gísladóttir húsfreyja, f. 25. nóvember 1951.
Börn þeirra:
2. Sturla Bergsson, f. 20. júní 1973.
3. Ívar Örn Bergsson, f. 8. apríl 1976.
Barn Vilborgar og fósturbarn Bergs er
4. Ingibjörg Reynisdóttir, f. 22. febrúar 1971 í Hafnarfirði.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.