Bergþór Ingimundarson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2014 kl. 16:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2014 kl. 16:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Bergþór Ingimundarson (Oddsstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Bergþór Ingimundarson bóndi og hreppstjóri fæddist 1722 og lést 20. ágúst 1792.
Hann var skráður búandi á Oddsstöðum 1762.
Bergþór lést 1792 af „síðusting“.
Kona hans var Herborg Hreiðarsdóttir húsfreyja, f. 1740, d. 25. ágúst 1802.
Möguleg börn þeirra eru ekki skráð, enda nær fæðingaskrá lengst til ársins 1786.


Heimildir