Auðbjörg Valtýsdóttir (Garðstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. október 2019 kl. 18:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. október 2019 kl. 18:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Auðbjörg Valtýsdóttir á Auðbjörg Valtýsdóttir (Garðstöðum))
Fara í flakk Fara í leit

Auðbjörg Valtýsdóttir á Garðstöðum, húsfreyja fæddist 8. ágúst 1889 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum og lést 14. ágúst 1963.
Faðir hennar var Valtýr bóndi á Önundarhorni, f. 12. september 1856 í Sólheimahjáleigu í Mýrdal, d. 27. júní 1899, Sveinsson bónda í Sólheimahjáleigu og síðan í Skarðshlíð u. Eyjafjöllum, f. 20. ágúst 1823 í Ormskoti þar, d. 4. júní 1887 á Rauðafelli þar, Sigurðssonar bónda í Sólheimahjáleigu, f. 1793, d. 20. apríl 1841 þar, Bjarnasonar, og konu Sigurðar, Hallberu húsfreyju, f. 30. október 1794, á lífi á Eyjarhólum þar 1858, Sveinsdóttur.
Móðir Valtýs á Önundarhorni og kona Sveins í Sólheimahjáleigu var Auðbjörg húsfreyja, f. 1819 í Pétursey, d. 9. nóvember 1884 í Skarðshlíð, Einarsdóttir bónda í Pétursey í Mýrdal, f. 1774 í Drangshlíð u. Eyjafjöllum, drukknaði í Hafursárútfalli 17. maí 1822, Brandssonar, og konu Einars Brandssonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 1786 í Keflavík, d. 29. ágúst 1889 í Hemru í Skaftártungu, Björnsdóttur.

Móðir Auðbjargar og kona Valtýs var Jóhanna húsfreyja á Önundarhorni, f. 7. júní 1865, d. 23. janúar 1960 í Eyjum, Jónsdóttir bónda á Söndum í Meðallandi, f. 10. júlí 1830 á Syðri-Steinsmýri þar, d. 28. febrúar 1871, drukknaði í lendingu við Dyrhólaós, Jónssonar bónda víða, lengst á Syðri-Steinsmýri, en síðast í Langholti þar, f. 27. júní 1794 á Undirhrauni þar, d. 17. júlí 1843 í Langholti þar, Ólafssonar, og síðari konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 1789 líklega í Háu-Kotey í Meðallandi, d. 18. júlí 1876 í Langholti, Jónsdóttur.
Móðir Jóhönnu á Önundarhorni og kona Jóns bónda þar var Guðrún húsfreyja í Langholti og Söndum í Meðallandi, f. 30. janúar 1841, d. í apríl 1937, Magnúsdóttir prests í Hraungerði, á Sandfelli í Öræfum, en síðast í Meðallandsþingum, f. 5. júní 1814, d. 22. apríl 1854, Jónssonar Nordahls, og konu sr. Magnúsar, Rannveigar húsfreyju, f. 1813, d. 1857, Eggertsdóttur.

Alsystkini Auðbjargar í Eyjum voru
1. Jón Valtýsson bóndi á 2. Kirkjubæ, f. 23. október 1890, d. 13. maí 1958. Kona hans var Guðrún Hallvarðsdóttir húsfreyja, f. 17. október 1888, d. 15. febrúar 1993.
2. Sigríður Valtýsdóttir húsfreyja á Kirkjuhól, f. 5. ágúst 1896, d. 25. maí 1974. Maður hennar var Kjartan Árnason skipstjóri og útgerðarmaður, f. 2. október 1896, d. 18. júní 1929.
Hálfbróðir Auðbjargar Valtýsdóttur, af sömu móður, var
3. Valtýr Brandsson verkstjóri, f. 3. júní 1901, d. 1. apríl 1976. Kona hans var Ásta Sigrún Guðjónsdóttir, f. 5. sept. 1905, d. 10. maí 1999.
Stjúpsystkini Auðbjargar, börn Brands af fyrra hjónabandi, voru:
4. Sigríður Brandsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 25. ágúst 1887, d. 1. ágúst 1966, kona Gísla Ingvarssonar.
5. Guðrún Brandsdóttir húsfreyja á Bessastöðum f. 17. apríl 1895, d. 16. desember 1981. Maður hennar var Eyjólfur Gíslason skipstjóri, f. 22. maí 1897, d. 7. júní 1995.
6. Ketill Kristján Brandsson netagerðarmaður í Bólstað, f. 16. janúar 1896, d. 11. nóvember 1975. Barnsmóðir hans var Steinunn Jónsdóttir í Norðurgarði, f. 19. ágúst 1903, d. 4. nóvember 1976.

Auðbjörg var með foreldrum sínum á Önundarhorni 1890, en faðir hennar lést 1899, er hún var tæpra tíu ára.
Hún var með ekkjunni móður sinni á Önundarhorni 1901 og með henni og Brandi stjúpa sínum þar 1910.
Auðbjörg fluttist til Eyja 1913.
Hún bjó með Ólafi á Garðstöðum 1913, með honum og barninu Valtý Óskari þar 1914 og 1915.
Þau Ólafur giftu sig 1915 og bjuggu á Garðstöðum með Valtý Óskar og 1916 með Valtý Óskar og Jón Guðleif.
Eyjólfur Jónsson var kominn til þeirra í fóstur 1924 og Jóhanna Jónsdóttir móðir Auðbjargar kom til þeirra 1943.
Ólafur lést 1956 og Auðbjörg 1963.

Maður Auðbjargar, (13. júní 1915), var Ólafur Eyjólfsson sjómaður, formaður, útgerðarmaður á Garðstöðum, f. 4. febrúar 1891 á Náströnd í Útskálasókn, d. 31. júlí 1956.
Börn þeirra voru:
1. Valtýr Óskar Ólafsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 11. ágúst 1914 á Önundarhorni, d. 24. febrúar 1983.
2. Jón Guðleifur Ólafsson bifreiðastjóri, verkstjóri, útgerðarmaður, f. 20. september 1916, d. 16. febrúar 1985.
Fóstursonur þeirra, systursonur Ólafs var
3. Eyjólfur Jónsson sjómaður, vélstjóri, f. 26. mars 1922, d. 6. október 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.