Athvarfið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 16:17 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 16:17 eftir Eyjavefur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Athvarfið

Athvarfið er rekið sem félagslegt úrræði fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Þann tíma sem börnin dvelja í Athvarfinu er reynt að hafa jákvæð uppeldisleg áhrif á þau, bæta andlega og líkamlega líðan þeirra og gera þeim kleift að njóta hæfileika sinna og ná sem bestum árangri í leik og starfi. Forráðamenn barns eru þeir aðilar sem fyrst og fremst bera ábyrgð á uppeldi þess. Í starfsemi Athvarfsins er rík áhersla lögð á samstarf við forráðamenn og á stuðning við hlutverk þeirra og skyldur.Athvarfið leggur einnig áherslu á gott samstarf við grunnskólana. Þrír starfsmenn starfa í Athvarfinu.

Heimilisfang: Þórsheimilinu við Hamarsveg 900 Vestmannaeyjar Sími: 4812964 Fax: Veffang: Netfang: athvarf@vestmannaeyjar.is Forstöðumaður: Jóna Ólafsdóttir Opnunartímar: Mánudaga - föstudaga kl. 11.00 - 16.00