Arndís Sigurðardóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. maí 2014 kl. 12:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. maí 2014 kl. 12:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Arndís Sigurðardóttir (Löndum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Arndís Sigurðardóttir húsfreyja á Löndum fæddist 1829 í Stóradalssókn u. Eyjafjöllum og lést 14 ágúst 1871 úr holdsveiki.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétursson bóndi í Stóru-Mörk, f. 1788, d. 28. apríl 1840 og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. febrúar 1791, d. 31. janúar 1860.

Arndís var með foreldrum sínum í Stóru-Mörk 1835. Faðir hennar lést 1840 og hún var 11 ára tökubarn á Seljalandi á því ári, 16 ára vinnukona þar 1845 og tvítug þar 1850 og 26 ára þar 1855.
Hún fluttist til Eyja 1856 og var bústýra Eyjólfs við komuna og einnig 1857, en þau giftust á því ári.
Þau bjuggu síðan á Löndum, en Eyjólfur fluttist að Kornhól eftir lát hennar.

Maður Arndísar, (5. september 1857), var Eyjólfur Hjaltason tómthúsmaður, bókbindari, f. 19. desmber 1821, d. 30. desember 1884.

Börn þeirra voru:
1. Sigurður Eyjólfsson sjómaður, f. 23. mars 1858, drukknaði af Gauki 13. mars 1874.
2. Ingibjörg Eyjólfsdóttir vinnukona á Torfastöðum í Fljótshlíð, f. 29. mars 1860, d. 6. febrúar 1886.
3. Þórunn Eyjólfsdóttir vinnukona, f. 8. september 1862.


Heimildir