Arndís María Kjartansdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. mars 2022 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2022 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Arndís María Kjartansdóttir frá Múla, húsfreyja, framhaldsskólakennari, fasteignasali fæddist 3. júlí 1971.
Foreldrar hennar voru Kjartan Þór Bergsteinsson loftskeytamaður, f. 15. september 1938 á Múla, og síðari kona hans Arndís Egilson húsfreyja, f. 3. apríl 1942 í Reykjavík, d. 14. júní 2005.

I. Barn Arndísar Egilson og fyrsta manns hennar Burk W. Smith:
1. Egill Egilson, f. 30. maí 1960. Hann dvelur erlendis.
II. Börn Arndísar og annars manns hennar Francis Joseph Clifford:
2. Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961. Maður hennar, (skildu), var Gunnar Bogason. Síðari maður Agnar Helgason.
3. Helene Arndis Clifford (heitir nú Helen Arndís Kjartansdóttir), f. 18. október 1963. (Sjá neðar).
III. Barn Arndísar og þriðja manns hennar Francis John Barstis:
4. Valborg Elin Barstis (heitir nú Valborg Elín Kjartansdóttir, f. 7. október 1967. (Sjá neðar).
IV. Börn Arndísar og fjórða manns hennar Kjartans Þórs Bergsteinssonar:
5. Arndís María Kjartansdóttir húsfreyja, kennari, fasteignasali, f. 3. júlí 1971. Maður hennar er Ómar Steinsson.
6. Kjartan Þór Kjartansson sjómaður, f. 30. janúar 1975, ókv.
7. Kolbrún Kjartansdóttir húsfreyja, f. 6. febrúar 1980. Maður hennar er Örvar Ólafsson.
Börn Arndísar og fósturbörn Kjartans Þórs:
8. Helen Arndís Kjartansdóttir húsfreyja, f. 18. október 1963. Fyrrum maður hennar Hermann Haraldsson. Maður hennar Baldur Þór Bragason, látinn.
9. Valborg Elín Kjartansdóttir húsfreyja, f. 7. október 1967. Sambýlismaður, (skildu) var Jón Trausti Haraldsson.

Arndís var með foreldrum sínum í æsku, lauk stúdentsprófi í Eyjum, nam kennslu við Háskóla Íslands og lauk B.Ed. prófi 2004. Einnig nam hún þýsku og ensku.
Hún er löggiltur fasteigna- fyrirtækja- og skipasali, rekur nú eigin fasteignasölu, Eldey.
Arndís hefur kennt við Framhaldsskólann í Eyjum frá 1997.
Þau Ómar giftu sig 2002, hafa eignast þrjú börn. Þau búa á Smáragötu 7.

Maður Arndísar, (17. júní 2002), er Engilbert Ómar Steinsson stýrimaður, hótelrekandi, umboðsmaður, f. 3. desember 1965.
Börn þeirra eru:
1. Breki Ómarsson, f. 10. ágúst 1998.
2. Bríet Ómarsdóttir, f. 19. mars 2002.
3. Berta Ómarsdóttir, f. 3. febrúar 2006.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.