„Arnar Sigurðsson (stýrimaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Arnar Sigurðsson (stýrimaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Þau Helena Björg giftu sig 1956, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Sólvöllum á Hellissandi 1956, byggðu húsið að [[Bakkastígur|Bakkastíg 29]] og bjuggu þar uns þau fluttu til Reykjavíkur í ágúst 1968. Þar bjuggu þau á Háaleitisbraut 51. <br>

Helena Björg hefur verið sjúklingur og dvalið á Hrafnistu í Reykjavík síðustu tvö árin, en Arnar býr enn á Háaleitisbrautinni.
Helena Björg hefur verið sjúklingur og dvalið á Hrafnistu í Reykjavík síðustu tvö árin, en Arnar býr enn á Háaleitisbrautinni.
<center>[[Mynd:Arnar Sigurðsson á Helgafelli 1967..jpg|ctr|400px]]</center>
<center>''Arnar á [[Helgafell]]i 1967.</center>

I. Kona Arnars, (25. desember 1956 að [[Ofanleiti]]), er [[Helena Björg Guðmundsdóttir (Landlyst)|Helena Björg Guðmundsdóttir, (Baddý)]] frá [[Landlyst]], húsfreyja, skrifstofukona, f. þar 4. maí 1936.<br>

Útgáfa síðunnar 30. mars 2020 kl. 20:48

Arnar Sigurðsson (Addi Sandari), sjómaður, stýrimaður, múrari, fasteignasali fæddist 15. nóvember 1931 í Keflavík við Hellissand á Snæfellsnesi.
Foreldrar hans voru Sigurður Magnússon múrari, verkstjóri, f. 17. ágúst 1903, d. 26. nóvember 1989, og kona hans Guðrún Jónasdóttir húsfreyja, f. 11. október 1904, d. 23. ágúst 1995.

Arnar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann vann við múrverk með föður sínum frá ungum aldri, lauk fiskimannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1954.
Arnar sótti til Eyja, var stýrimaður á vetrarvertíðum, m.a. á Ágústi, Kára, Tý og Bjarna riddara, en stundaði múraraiðn á sumrum.
Eftir flutning til Reykjavíkur 1968 byggði hann fimm hús í Garðabæ og seldi.
Þau Helena Björg giftu sig 1956, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Sólvöllum á Hellissandi 1956, byggðu húsið að Bakkastíg 29 og bjuggu þar uns þau fluttu til Reykjavíkur í ágúst 1968. Þar bjuggu þau á Háaleitisbraut 51.
Helena Björg hefur verið sjúklingur og dvalið á Hrafnistu í Reykjavík síðustu tvö árin, en Arnar býr enn á Háaleitisbrautinni.

ctr
Arnar á Helgafelli 1967.

I. Kona Arnars, (25. desember 1956 að Ofanleiti), er Helena Björg Guðmundsdóttir, (Baddý) frá Landlyst, húsfreyja, skrifstofukona, f. þar 4. maí 1936.
Börn þeirra:
1. Guðrún Arnarsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 17. mars 1956. Maður hennar Magnús Kristjánsson.
2. Þór Arnarsson viðskiptafræðingur, grunnskólakennari, ökukennari, f. 18. janúar 1962. Kona hans Saksithan Chobkayan Arnarsson ættuð frá Thailandi.
3. Arndís Arnarsdóttir markaðsfræðingur, lögfræðistúdent, starfsmannastjóri, f. 20. september 1968 í Reykjavík. Ógift.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.