Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir (Uppsölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Uppsölum fæddist 8. desember 1903 og lést 3. ágúst 1963.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður í Uppsölum, f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Anna Sigurlaug fæddist vanheil, veiktist ung hastarlega og var sjúklingur alla ævi.
Hún var fyrst í skjóli foreldra sinna, eftir 1930 í skjóli föður síns og systkina sinna, Steinvarar og Jóns.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.