Anna Kristín Jensdóttir Schram

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. febrúar 2015 kl. 19:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. febrúar 2015 kl. 19:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Anna Kristín Jensdóttir''', (skráði sig þannig), húsfreyja á Skeggjastöðum í Útskálasókn á Reykjanesi fæddist 22. ágúst 1831 í Godthaab og lést 11. júní...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Kristín Jensdóttir, (skráði sig þannig), húsfreyja á Skeggjastöðum í Útskálasókn á Reykjanesi fæddist 22. ágúst 1831 í Godthaab og lést 11. júní 1900 í Krókskoti í Útskálasókn.
Foreldrar hennar voru Jens Larsen Schram verslunarstjóri, trésmiður, f. 3. febrúar 1806, d. 22. september 1869, og kona hans Steinunn Thordersen Guðmundsdóttir Schram, f. 24. apríl 1803, d. 25. maí 1879.

Anna Kristín fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur og síðan á Flankastaði á Garðskaga.
Hún var bústýra Brynjólfs við giftingu þeirra á Melabergi í Útskálasókn 1851, húsfreyja þar 1852, í Klöpp þar 1853 og enn 1857. Þau voru komin að Skeggjastöðum 1859 og voru þar enn 1865, á Nesjum þar við andlát Brynjólfs 1870.
Anna var bústýra Sigurlaugs Benónýssonar á Nesjum 1880 og í Móhúsum 1890. Anna lést 1900 í Krókskoti, blind.

Maður Önnu, (2. desember 1851), var Brynjólfur Jónsson bóndi á Skeggjastöðum, f. 27. júlí 1827, d. 25. nóvember 1870.
Börn þeirra hér:
1. Sigríður Brynjólfsdóttir vinnukona, f. 23. febrúar 1852 á Melabergi.
2. Högni Brynjólfsson verkamaður í Krókskoti, f. 5. ágúst 1853, d. 24. maí 1914.
3. Jón Brynjólfsson, f. 20. september 1855, d. 26. október 1855.
4. Helga Brynjólfsdóttir vinnukona, f. 7. febrúar 1857, d. 4. febrúar 1888 í Kirkjuvogi.
5. Jens Larsen Brynjólfsson, f. 18. júní 1859 á Skeggjastöðum, d. 27. júní 1859.
6. Brynjúlfur Kristján Brynjúlfsson sjómaður, verkamaður, f. 6. október 1863, d. 23. ágúst 1933.
7. Jón Brynjólfsson, tvíburi, f. 27. ágúst 1866, d. sama dag.
8. Andvana drengur, tvíburi, f. 27. ágúst 1866.


Heimildir