Anna Kristín Jensdóttir Schram

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. ágúst 2015 kl. 18:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. ágúst 2015 kl. 18:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Kristín Jensdóttir, (skráði sig þannig), húsfreyja á Skeggjastöðum í Útskálasókn á Reykjanesi fæddist 22. ágúst 1831 í Godthaab og lést 11. júní 1900 í Krókskoti í Útskálasókn.
Foreldrar hennar voru Jens Larsen Schram verslunarstjóri, trésmiður, f. 3. febrúar 1806, d. 22. september 1869, og kona hans Steinunn Thordersen Guðmundsdóttir Schram, f. 24. apríl 1803, d. 25. maí 1879.

Anna Kristín var með foreldrum sínum í Godthaab, fluttist með þeim til Reykjavíkur 1832, var með þeim í Grönnebæ þar 1835, með þeim á Syðri-Flankastöðum á Miðnesi 1840 og enn 1850.
Hún giftist Brynjólfi Jónssyni 1851 og bjó á Klöpp á Miðnesi 1855 með börn þeirra Sigríði, Högna og Jón, en Jón lést mánaðargamall. Þau bjuggu á Skeggjastöðum þar 1860 með Sigríði og Högna, höfðu eignast Helgu 1857, en orðið að koma henni í fóstur.
Þau eignuðust Jens Larsen 1859, en hann lést nýfæddur.
Brynjólfur Kristján fæddist 1863 og var með þeim og síðan móður sinni um skeið.
Þau eignuðust tvíbura 1866, annar fæddist andvana en hinn dó samdægurs.
Brynjólfur lést 1870 og hún bjó þá ein á Melabergi á Miðnesi með börnin Sigríði og Brynjólf Kristján og „lifir á vinnu sinni“.
Hún var bústýra hjá Sigurlaugi Benóníssyni í Nesjum þar 1880 með Brynjólf Kristján 17 ára hjá sér, sögð ekkja, og þar var einnig Steinunn systir hennar með barn sitt Steinunni. Hún var enn bústýra hjá Sigurlaugi í Móhúsum 1890.
Anna Kristín lést 1900.

I. Maður Önnu, (2. desember 1851), var Brynjólfur Jónsson bóndi og sjómaður, f . 27. júlí 1827 í Hruna, Árn., d. 25. september 1870. Foreldrar hans voru sr. Jón Steingrímsson frá Happavöllum í Öræfum, prestur í Hruna, og kona hana Helga Brynjólfsdóttir prests á Útskálum Sigurðssonar.
Börn þeirra hér:
1. Högni Brynjólfsson vinnumaður í Krókskoti á Miðnesi 1910, f. 5. ágúst 1851, d. 24. maí 1914.
2. Sigríður Brynjólfsdóttir vinnukona á Bolafæti í Njarðvík 1880, f. 27. febrúar 1852 á Melabergi.
3. Jón Brynjólfsson, f. 20. september 1855 á Klöpp, d. 26. október 1855.
4. Helga Brynjólfsdóttir, f. 7. febrúar 1857 á Klöpp, d. 4. febrúar 1888 í Kirkjuvogi.
5. Jens Larsen Brynjólfsson, f. 18. júní 1859 á Skeggjastöðum, d. 27. júní 1859.
6. Brynjólfur Kristján Brynjólfsson vinnuhjú, verkamaður, f. 6. október 1863 á Skeggjastöðum, d. 23. ágúst 1933.
7. Jón Brynjólfsson, tvíburi, f. 27. ágúst 1866, d. sama dag.
8. Andvana piltbarn, tvíburi, f. 27. ágúst 1866.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.