Anna Þorbjörnsdóttir (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 20:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 20:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Þorbjörnsdóttir í Dalahjalli, fæddist 1797 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og lést 11. mars 1849.
Faðir hennar var Þorbjörn Jónsson tómthúsmaður í Dalahjalli, f. 1765, d. 24. febrúar 1811.
Móðir Önnu var Guðlaug Þorsteinsdóttir vinnukona í Miðey í A-Landeyjum 1801, síðar á Steinsstöðum, f. 1767, d. 3. október 1820.

Foreldrar hennar voru vinnufólk í Bakkahjáleigu við fæðingu hennar.
Anna var þriggja ára með föður sínum í Bakkahjáleigu 1801, einnig skráð 4 ára hjá móður sinni í Miðey á manntalinu.
Hún var fósturbarn í Presthúsum 1816, húsfreyja í Kastala 1821, í Ólafshúsum 1822, í Presthúsum 1823, ekkja, vinnukona að Ofanleiti 1835, en var hjá Þórði syni sínum á Löndum 1845.

Maður Önnu, (8. október 1820), var Einar Einarsson tómthúsmaður og bóndi, f. 1796, d. 15. september 1833 af slysförum.
Börn þeirra hér:
1. Þorbjörn Einarsson, f. 9. október 1819 á Gjábakka, d. 15. október 1819 úr ginklofa.
2. Þorbjörg Einarsdóttir, f. 2. júlí 1821 í Kastala, d. 17. júlí 1821 úr ginklofa.
3. Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 4. október 1822, d. 27. mars 1860.
4. Guðmundur Einarsson, f. í desember 1823 í Presthúsum, d. 7. desember 1823 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
5. Páll Einarsson, f. 27. mars 1825 í Presthúsum, d. 1. apríl 1825 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.