Alfreð Sveinbjörnsson (pípulagningameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2022 kl. 16:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2022 kl. 16:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Alfreð Sveinbjörnsson (pípulagningameistari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Alfreð Elías Sveinbjörnsson.

Alfreð Elías Sveinbjörnsson frá Á í Unadal í Skagafirði, pípulagningameistari fæddist þar 26. apríl 1924 og lést 19. mars 2022 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Sveinbjörn Sigurður Sveinbjörnsson bóndi, meðhjálpari, gangnastjóri, réttarstjóri, f. 27. maí 1893 í Hornbrekku á Höfðaströnd, Skagaf., d. 27. júlí 1990, og kona hans Jóhanna Símonardóttir húsfreyja, f. 21. október 1899 að Nýlendu á Höfðaströnd, d. 11. desember 1988.

Alfreð var með foreldrum sínum á Á, flutti með þeim að Ljótsstöðum á Höfðaströnd 1934.
Hann lærði pípulagnir hjá Sigursteini Marinóssyni pípulagningameistara 1964-1968, varð meistari í iðninni.
Alfreð vann öll almenn sveitastörf og verkamannavinnu framan af ævi, en síðar vann hann við iðn sína hjá Miðstöðinni í Eyjum og var síðar sjálfstætt starfandi í Grindavík.
Þau Ingibjörg giftu sig 1956, eignuðust fjögur börn og eitt fósturbarn. Ingibjörg átti fyrir tvö börn. Þau bjuggu í Litla-Gerði til Goss 1973. Þá fluttu þau til Grindavíkur, en aftur til Eyja 2001 og bjuggu á Strembugötu 4.
Ingibjörg lést 2002 og Alfreð 2022.

I. Kona Alfreðs, (26. ágúst 1956), var Ingibjörg Bryngeirsdóttir frá Búastöðum, húsfreyja, f. 6. október 1925, d. 2. júní 2002.
Börn þeirra:
1. Jóhann Þórir Alfreðsson, f. 22. september 1957. Kona hans Ingibjörg Áslaugsdóttir.
2. Sveinbjörn Símon Alfreðsson, f. 7. nóvember 1960. Kona hans Gunnhildur Björgvinsdóttir.
3. Sigurður Björn Alfreðsson, f. 25. ágúst 1962. Kona hans Margrét Elísabet Kristjánsdóttir.
4. Jóhanna Alfreðsdóttir, f. 29. október 1965. Maður hennar Ólafur Týr Guðjónsson.
Fóstursonur Ingibjargar og Alfreðs, sonur Jóhanns Þóris og Sigríðar Bragadóttur
5. Alfreð Elías Jóhannsson, f. 12. ágúst 1976. Kona hans Berglind Friðriksdóttir.
Börn Ingibjargar frá fyrra sambandi:
6. Bryngeir Sigfússon, f. 26. júlí 1945. Kona hans Ásta Margrét Kristinsdóttir.
7. Lovísa Guðrún Sigfúsdóttir, f. 5. september 1946, d. 16. janúar 1980. Maður hennar Þröstur Bjarnason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.