Aðalheiður Jónsdóttir (Múla)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. september 2016 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2016 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Aðalheiður Jónsdóttir (Múla)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarney Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja fæddist 29. maí 1927 á Múla (Bárustíg 14) og lést 21. desember 1951 af slysförum.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson verkamaður frá Djúpadal, f. 24. apríl 1899 á Norðfirði, d. 14. mars 1975 í Eyjum, og kona hans, skildu, Sigríður Þorsteinsdóttir húsfreyja og verkakona, f. 8. júní 1897 í Stóru-Hlíð í Þorkelshólshreppi í V-Húnavatnssýslu, d. 20. janúar 1974.

Aðalheiður var með foreldrum símum á Múla 1927, í Brúarhúsi, (Horninu, Vestmannabraut 1) í lok árs 1927, á Litlu-Grund 1928.
Foreldrar hennar skildu og Aðalheiður var með verkakonunni móður sinni á Seljalandi 1930, á Ásbrún, Hásteinsvegi 4 1934, á Reykjum 1940.
Þær mæðgur voru í Nýborg 1945 og bjuggu þar með Ólafi Stefánssyni, f. 8. ágúst 1919. Aðalheiður giftist Ólafi og bjó með honum á Hólagötu 21 1948 við fæðingu Hennýjar Drafnar og þar var Sigríður móðir hennar með þeim.
Aðalheiður lést af slysförum 1951.

Maður Aðalheiðar var Ólafur Stefánsson verkamaður, múrari, f. 8. ágúst 1919 á Siglufirði, d. 29. febrúar 2000.
Barn þeirra
1. Henný Dröfn Ólafsdóttir húsfreyja, f. 9. október 1948, d. 17. mars 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.