Aðalheiður Bjarnadóttir (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2022 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2022 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Aðalheiður Bjarnadóttir (Sóla) á Aðalheiður Bjarnadóttir (Haukabergi))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Aðalheiður Bjarnadóttir.

Guðrún Aðalheiður Bjarnadóttir frá Arnarbæli í Grímsnesi, matráðskona á Sóla fæddist 1. febrúar 1904 í Arnarbæli og lést 15. desember 2000 að Droplaugarstöðum í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Bjarni Eggertsson frá Vaðnesi í Grímsnesi, f. 4. maí 1877, d. 2. desember 1952 og Hólmfríður Jónsdóttir frá Þorlákshöfn, húsfreyja, f. 27. ágúst 1868, d. 29. maí 1934.

Aðalheiður var með foreldrum sínum í æsku, í Arnarbæli og á Tjörn á Eyrarbakka.
Hún bjó á Eyrarbakka til ársins 1956, er hún flutti til Eyja. Þar var hún lengi matráðskona á barnaheimilinu Sóla, bjó á Haukabergi við Vestmannabraut 11.
Hún flutti til Reykjavíkur í Gosinu 1973 og vann þar aðhlynningarstörf til 78 ára aldurs.
Aðalheiður bjó lengi í þjónustuíbúð Furugerði, en síðustu tvö árin dvaldi hún á Droplaugarstöðum.
Aðalheiður eignaðist barn með Antoni Valgeiri 1929.
Hún lést árið 2000.

I. Barnsfaðir Guðrúnar Aðalheiðar var Anton Valgeir Halldórsson matsveinn, bryti, f. 31. maí 1902, d. 2. febrúar 1964.
Barn þeirra:
1. Hjördís Antonsdóttir, f. 17. janúar 1929 á Eyrarbakka, d. 5. nóvember 2007. Maður hennar Ólafur Björgvin Jóhannesson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.