Þorsteinn Jónsson (Laufási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:25 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:25 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn Jónsson

Þorsteinn fæddist í Gularáshjáleigu í Austur Landeyjum 14. október 1880. Hann var sonur Jóns Einarssonar og Þórunnar Þorsteinsdóttur. Þau fluttu til Vestmannaeyja árið 1883. Þorsteinn var kvæntur Elínborgu Gísladóttur.


Sjómaður

Þorsteinn hóf sjómennskuferil sinn um fermingu á opnu skipi með Hannesi lóðs á Miðhúsum. Hann varð svo formaður á teinæringnum Ísak árið 1900 og var með hann til ársins 1905. Formaður í 48 ár

Hann varð ásamt öðrum fyrstur manna til þess að kaupa vélbát til Vestmannaeyja og markaði á þann hátt upphaf vélbátaaldar í Vestmannaeyjum. Báturinn sem Þorsteinn og félagar keyptu var nefndur Unnur og var Þorsteinn formaður með hann í. Hann eignaðist síðar tvo aðra báta með sama nafni og var formaður með þá til ársins 1948 og hafði þá verið formaður í samtals 48 ár.


Framfarasinni

Þorsteinn var mjög framfarasinnaður í úterðarmálum og var m.a. sá fyrsti til að gera tilraunir með veiðar í þorskanet. Heiðursborgari Vestmannaeyjabæjar

Hann var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjabæjar en lést 25. mars árið 1965.