Þorsteinn Hallgrímsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Hallgrímsson tölvu- og kerfisfræðingur fæddist 13. september 1969 í Eyjum.
Foreldrar hans Hallgrímur Júlíusson netagerðarmeistari, f. 25. maí 1946, og kona hans Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947.

Þorsteinn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann nam í Framhaldsskólanum 1984-1988, lauk þar sveinsprófi í netagerð, lærði forritun og kerfisfræði í Rafiðnaðarskólanum í Reykjavík 1998-2000.
Þorsteinn vann í Net hf. frá 1984-1999, var netstjóri í Viðskipta- og tölvuskólanum 2000-2002, var kerfisstjóri í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ 2002-2004, vann í Þekking tölvurekstur 2004-2008, í Golfverslun Hole In One 2008-2016, í Þekking tölvurekstur 2016-2020. Þá hætti hann vinnu vegna veikinda.
Þau Ingibjörg giftu sig 2000, eignuðust tvö börn. Þau búa við Skeljatanga í Mosfellsbæ.

I. Kona Hallgríms, (15. ágúst 2000), er Ingibjörg Valsdóttir sjúkraþjálfari, f. 16. febrúar 1970 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Kristín María Þorsteinsdóttir móta- og kynningastjóri, f. 21. júní 1998. Sambúðarmaður Theodór Emil Karlsson.
2. Valur Þorsteinsson háskólanemi, f. 1. júlí 2000. Sambúðarkona hans Birna Einarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ingibjörg.
  • Íslendingabók.
  • Sjúkraþjálfaratal. Ritstjórar: Steingrímur Steinþórsson, Ívar Gissurarson. Mál og mynd 2001.
  • Þorsteinn.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.