Þorleifur Dolli Hjálmarsson (rafiðnfræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þorleifur Dolli Hjálmarsson.

Þorleifur Hjálmarsson (Dolli) frá Grænuhlíð 2, rafvirki, rafiðnfræðingur fæddist 27. desember 1961 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Þorleifur Hjálmarsson frá Kúvíkum við Reykjarfjörð, Strandas., rafvirkjameistari, f. þar 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011, og kona hans Kristín Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð, húsfreyja, f. 22. maí 1925, d. 24. apríl 2022.

Börn þeirra:
1. Hjálmfríður Ingibjörg Hjálmarsdóttir (Inga Fríða), Áshamri 16, húsfreyja, bæjarstarfsmaður, f. 2. apríl 1955 í Bólstaðarhlíð. Maður hennar Júlíus Valdimar Óskarsson.
2. Ólafur Hjálmarsson hagfræðingur, hagstofustjóri, f. 6. febrúar 1957 í Bólstaðarhlíð. Kona hans Sigríður Anna Einarsdóttir.
3. Þorleifur Dolli Hjálmarsson rafiðnfræðingur í Reykjavík, f. 27. desember 1961. Fyrrum sambúðarkona hans Ágústa Hulda Árnadóttir. Kona hans Sigurdís Harpa Arnarsdóttir.
4. Soffía Birna Hjálmarsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 10. desember 1966. Sambúðarmaður hennar Sigurður Steinar Konráðsson.

Þorleifur lærði rafvirkjun í Iðnskólanum í Eyjum, lauk sveinsprófi 1983. Meistari hans var Brynjúlfur Jónatansson. Hann varð rafiðnfræðingur í Tækniskóla Íslands 1987.
Hann vann áður hjá Neista og Fiskimjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar (FES), Haraldi og Sigurði sf., Rafteikningu hf., við hönnun og umsjón rafdreifikerfa. Hann stofnaði útibú frá Rafteikningu hf. í Eyjum 1992. Þorleifur hefur unnið að hönnun rafvirkja í margar stofnanir víða, í Eyjum og á fasta landinu.
Þau Ágústa Hulda hófu sambúð, eignuðust þrjú börn og Þorleifur Dolli var fóstri barna hennar. Þau skildu.
Þorleifur Dolli eignaðist barn með Guðrúnu Hafdísi 2003.
Þau Sigurdís giftu sig 2009, eignuðust ekki börn saman.

I. Sambúðarkona Þorleifs, (slitu), er Ágústa Hulda Árnadóttir matráðskona, f. 16. janúar 1962 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Hjálmar Þorleifsson rafvirki, f. 7. janúar 1995. Kona hans Bára Viðarsdóttir.
2. Árni Þorleifsson sundlaugarstarfsmaður, f. 7. janúar 1995. Sambúðarkona hans Agnes Sveinsdóttir.
3. Goði Þorleifsson í Miðstöðinni, f. 16. janúar 1997.
Börn Ágústu og fósturbörn Þorleifs Dolla:
4. Óskar Róbertsson steinsmiður í Kanada, f. 23. júlí 1978. Kona hans Sigrún Áslaug Ásmundsdóttir.
5. Dorothy Lisa Woodland sjúkraflutningamaður í Bandaríkjunum, f. 20. nóvember 1986. Maður hennar Travis Robertson.

II. Barnsmóðir Þorleifs Dolla er Guðrún Hafdís Björgvinsdóttir í Reykjavík, f. 4. júní 1959.
Barn þeirra:
4. Kristín Soffía Þorleifsdóttir, f. 17. janúar 2003.

III. Kona Þorleifs, (25. september 2009), er Sigurdís Harpa Arnarsdóttir myndlistarmaður, f. 3. maí 1964.
Barn hennar:
5. Gunnar Ingi Eysteinsson, f. 5. október 1985.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
  • Þorleifur Dolli.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.