„Þingeyri“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
(Smáleiðr.)
Ekkert breytingarágrip
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Þingeyri1.jpg|thumb|340px|Þingeyri]]
[[Flokkur:Hús]]
Húsið '''Þingeyri''', við [[Skólavegur|Skólaveg]] 37 í Vestmannaeyjum, er byggt árið 1921. Jón Jónsson byggði húsið og flutti hann ásamt [[Steinunn Sigurðardóttir|Steinunni Sigurðardóttur]] konu sinni og syni, í húsið og bjuggu þau í því til ársins 1924, er [[Sigurjón Sigurðsson]], fisksali kaupir það og flytur inn ásamt fjölskyldu sinni. Sigurjón bjó í húsinu í eitt ár. Árið 1925 áttu Sigurjón og [[Hallgrímur Guðjónsson]], skipti á húsum, Hallgrímur átti húsið [[Grímsstaðir|Grímsstaði]], við Skólaveg 27. Hallgrímur tók nafnið Grímsstaði með sér í flutningunum og ætlaði að kalla húsið Grímsstaði, en bæjarbúar héldu áfram að kalla húsið Þingeyri, þannig að ekki gekk upp að breyta nafninu.
Hallgrímur lést stuttu eftir að hann flutti inn, er hann tók útbyrðis af vélbátnum Emmu VE og drukknaði. Kona hans, [[Vilhelmína Jónasdóttir]] og börn fluttu í kjallaraíbúðina og leigðu [[Þorsteinn Þ. Víglundsson|Þorsteini Þ.Víglundssyni]] efri hæðina.


Árið 1930 kaupir [[Sigurður Sigurjónsson]], Siggi á Freyju VE, húsið en hann var sonur Sigurjóns fisksala sem var í húsinu 1924 – 1925. Sigurður var í húsinu til ársins 1954, en á árinu 1951 seldi hann húsið [[Finnbogi Friðfinnsson|Finnboga Friðfinnssyni]] og [[Kristjana Þorfinnsdóttir|Kristjönu Þorfinnsdóttur]]. Þau fluttu inn í kjallaraíbúðina og ætluðu að vera þar stutt því Sigurður var að byggja hús sitt er stendur við [[Boðaslóð]] 15. Eitthvað dróst byggingin og flutti Sigurður út árið 1954. Þá fluttu þau Bogi og Kristjana upp, enda orðið þröngt um þau niðri, komin með þrjú börn. Bogi byggði við húsið árið 1955 og stækkaði það. Bogi og Kristjana voru í húsinu til ársins 1959 er þau seldu það. [[Sveinn Valdimarsson]] keypti húsið. Sveinn og kona hans, [[Lára Þorgeirsdóttir]] voru í húsinu til ársins 1968. Árið 1967 seldi Sveinn kjallarnn, þeim systrum [[Guðrún Eyjólfsdóttir|Guðrúnu]] og [[Jóna Eyjólfsdóttir|Jónu]] Eyjólfsdætrum frá Fjósum í Mýrdal.
Árið 1968 selur Sveinn húsið [[Hilmar Árnason|Hilmari Árnasyni]] og [[Guðrún Jónsdóttir Þingeyri|Guðrúnu Jónsdóttur]], þau voru í húsinu til ársins 1974 er þau selja [[Brynheiður Ketilsdóttir|Brynheiði Ketilsdóttur]] og [[Björn Eiríkur Jónsson|Birni Eiríki Jónssyni]] húsið. Sonur þeirra [[Guðlaugur Grétar Björnsson]] í Gerði, endurnýjaði húsið fyrir foreldra sína. Hann setti nýtt á gólf, skipti um vatnslagnir, rafmagn og nýja glugga í húsið, hann skipti einnig um eldhúsinnréttingu.
[[Stefán Pétur Bjarnason]] og [[Viktoría Gísladóttir]], keyptu Þingeyri árið 1982. Stefán útbjó skiltið með nafni húsins á. [[Sigurfinnur Sigurfinnsson teiknikennari]], hannaði stafina. Stefán skipti um járn á þaki húsins, þegar hann var þar. Stefán og Viktoría seldu húsið árið 1993, og keyptu [[Sigríður Óskarsdóttir]] og [[Kjartan Már Ívarsson]] húsið.
Sigga og Kjartan voru í húsinu til ársins 1995.
Árið 1986 eignast [[Sigurbára Sigurðardóttir]] kjallaraíbúðina. Eftir að Jóna deyr, arfleiðir Guðrún [[Georg Skæringsson]] á Vegbergi, eiginmann Sigurbáru, að íbúðinni, en Georg lést áður en Guðrún dó, svo Sigurbára erfði íbúðina.
[[Óskar Pétur Friðriksson]] og [[Torfhildur Helgadóttir]] kaupa efri hæðir húsins árið 1995, og hafa búið þar síðan. Þau hafa tekið alla íbúðina í gegn, endurnýjað allt háaloftið, stofu, eldhús og klósett.
Sigurbára seldi [[Ásta Guðrún Jóhannesdóttir|Ástu Guðrúnu Jóhannesdóttur]] kjallaraíbúðina í árslok 1995. Ásta seldi Óskari P. Friðrikssyni og Torfhildi íbúðina 1997. [[Grétar Már Óskarsson]] keypti íbúðina af þeim árið 1998 og seldi hana [[Goremykina Kristina]] árið 2003, og býr hún þar enn. Kristina hefur tekið alla íbúðina í gegn og endurnýjað.
:''Óskar Pétur Friðriksson, íbúi á Þingeyri við Skólaveg 37 Vestmannaeyjum, tók saman í desember 2005.''
{{Heimildir|
*Munnlegar heimildir:
Elías Gunnlaugsson,
Erlendur Stefánsson,
Friðfinnur Finnbogason,
Guðlaugur Grétar Björnsson,
Júlíus Hallgrimsson,
Kjartan Már Ívarsson,
Kristjana Þorfinnsdóttir,
Maggý Sigurjónsdóttir,
Sigurbára Sigurðardóttir,
Stefán Pétur Bjarnason,
Sveinn Valdimarsson.
*Skriflegar heimildir:
Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja, með aðstoð Jónu Bjargar Guðmundsdóttur, skjalavarðar.
}}

Útgáfa síðunnar 19. júlí 2006 kl. 14:43