Þórunn Eyjólfsdóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. febrúar 2016 kl. 14:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. febrúar 2016 kl. 14:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórunn Eyjólfsdóttir vinnukona frá Löndum fæddist 8. september 1862.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Hjaltason tómthúsmaður og bókbindari, f. 19. desember 1821, d. 30. desember 1884, og kona hans Arndís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1829, d. 14. ágúst 1871.

Þórunn var með foreldrum sínum á Löndum 1870, var 10 ára niðursetningur á Vilborgarstöðum 1871.
Hún fór frá Fagurlyst til Hvolhrepps 1875, var vinnukona á Hlíðarenda í Fljótshlíð 1880, vinnukona á Ljótarstöðum í A-Landeyjum 1890, ógift vinnukona í húsinu að Hafnarstræti 1 í Reykjavík 1901.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.