Þórdís Magnúsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2013 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þórdís Magnúsdóttir''' húsfreyja og prestkona að Ofanleiti fæddist 1788 á Þykkvabæjarklaustri og lést 3. sept. 1859 að Ofanleiti.<br> Faðir hennar var Magnús b...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Magnúsdóttir húsfreyja og prestkona að Ofanleiti fæddist 1788 á Þykkvabæjarklaustri og lést 3. sept. 1859 að Ofanleiti.

Faðir hennar var Magnús bóndi og klausturhaldari í Þykkvabæ í Álftaveri, f. um 1732, d. 26. nóv. 1802, Andrésson bónda í Eyvindarmúla í Fljótshlíð, f. 1695, Brynjólfssonar bónda í Múla þar, f. 1671, Andréssonar, og konu Brynjólfs, Neríðar húsfreyju í Múla og Fljótsdal þar, f. 1666, Oddsdóttur.
Móðir Magnúsar klausturhaldara og kona Andrésar í Eyvindarmúla er ókunn.

Móðir Þórdísar og kona Magnúsar var Helga húsfreyja, f. 1752 í Presthúsum í Mýrdal, d. 26. nóvember 1826 á Mýrum í Álftaveri, Ólafsdóttir bónda í Presthúsum, f. 1716, Gíslasonar og konu Ólafs, Þórdísar húsfreyju, f. 1708, Teitsdóttur.

Þórdís var hjá foreldrum sínum á Þykkvabæjarklaustri til 1801 eða lengur, prestkona í Holti í Mýrdal 1813-1815, á Stórólfshvoli 1815-1817, á Mýrum í Álftaveri 1817-1827, á Ofanleiti 1827-58, prestsekkja þar 1858 til dd.
Þórdís ól a.m.k. ellefu börn.

Maður Þórdísar, (1. nóvember 1811), var sr. Jón Jónsson Austmann, f. 1787, d. 20. ágúst 1858.
Börn þeirra Jóns:
1. Helga Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 1812, d. 17. maí 1839, gift Níels Stephan Ringsted kaupmanni.
2. Magnús Jónsson Austmann bóndi í Nýjabæ, f. 12. apríl 1814, d. 15. maí 1859, kvæntur Kristínu Einarsdóttur húsfreyju.
3. Jón Austmann bóndi í Þorlaugargerði, f. 12. apríl 1814, d. 15. mars 1888, kvæntur Rósu Hjartardóttur.
4. Þórunn Jónsdóttir Austmann, f. 1815, dó ung.
5. Guðný Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 17. júní 1816, d. 20. júlí 1889, kona Sigurðar Einarssonar bónda á Kirkjubæ, síðar húsfreyja í Einholti á Mýrum, gift sr. Ólafi Magnússyni, síðast húsfreyja í Þórisdal í Lóni, gift Jóni Brynjólfssyni.
6. Lárus Jónsson Austmann, f. 1818, d. 5. mars 1834, drukknaði í Þurfalingsslysinu.
7. Guðmundur Jónsson Austmann, f. (1820).
8. Jórunn Jónsdóttir Austmann húsfreyja í Jómsborg, f. 1821, d. 27. október 1906, fyrr kona Jóns Salómonssonar verzlunarstjóra, síðar gift Engilbert Engilbertssyni verzlunarmanni.
9. Guðfinna Jónsdóttir Austmann húsfreyja, f. 1823, d. 7. apríl 1897, kona Árna Einarssonar bónda og alþingismanns.
10. Vigfús Jónsson Austmann, f. 1826, d. 1826.
11. Stefán Jónsson Austmann bóndi í Vanangri, skírður 10. okt. 1829, drukknaði af Gauki 13. mars 1874, kvæntur Önnu Valgerði Benediktsdóttur ljósmóður.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.