Þórdís Fríðsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. nóvember 2018 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. nóvember 2018 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þórdís Friðsteinsdóttir''' húsfreyja fæddist 26. ágúst 1934 í Reykjavík. <br> Foreldrar hennar voru Friðsteinn Á. Friðsteinsson, f. 10. september 1899 og Þórdís B...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Friðsteinsdóttir húsfreyja fæddist 26. ágúst 1934 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Friðsteinn Á. Friðsteinsson, f. 10. september 1899 og Þórdís Björnsdóttir, f. 14. maí 1906, d. 10. desember 1945. Stjúpmóðir Þórdísar Friðsteinsdóttur var Jósefína Svanlaug Jóhannsdóttir, f. 1. mars 1909, d. 4. ágúst 1997.

Þórdís bjó með Vigfúsi í Garðhúsum 1954-1956. Þau giftu sig 1957, eignuðust þrjú börn, bjuggu á Hásteinsvegi 21, Höfða 1956-1964, síðan á Herjólfsgötu 10 nema um skeið í Gosinu, er þau bjuggu lengst á Birkigrund 66 í Kópavogi. Þau sneru heim 1975.
Þórdís vann um skeið síðari ár á leikskóla.
Vigfús lést 2010. Þórdís býr í Baldurshaga, Vesturvegi 5.

I. Maður Þórdísar, (16. febrúar 1957), var Vigfús Waagfjörð vélstjóri, f. 17. febrúar 1930 í Garðhúsum, d. 21. júlí 2010 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Börn þeirra:
1. Kristín Jóna Vigfúsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 17. desember 1954.
2. Friðsteinn Vigfússon vélstjóri, f. 22. júlí 1956.
3. Kári Vigfússon matreiðslumaður, veitingamaður, f. 3. ágúst 1961.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Kristín Jóna.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 6. ágúst 2010. Minning Vigfúsar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.