Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. febrúar 2022 kl. 10:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. febrúar 2022 kl. 10:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi fæddist þar 7. september 1942 og lést 1. febrúar 1982.
Foreldrar hennar voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889 í Gamlabæ í Meðallandi, d. 13. september 1964 í Reykjavík, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893 í Fjósakoti í Meðallandi, d. 20. júlí 1945.

Börn Ingibjargar og Bjarnfreðs:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980. Kona hans Arnheiður Sigurðardóttir.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995. Maður hennar Ásmundur Siggeirsson.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975. Kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994. Fyrrum maður hennar Anton Júlíus Guðjónsson. Maður hennar Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010. Maður hennar Ingólfur Finnbjörnsson.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985. Maður hennar Guðmundur Óskar Guðmundsson.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, starfsstúlka, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988. Kona hans Kristín Óskarsdóttir.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005. Kona hans Jóhanna Bára Sigurðardóttir.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014. Kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012. Kona hans Guðrún Árnadóttir.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson verkamaður, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019. Kona hans Pisamai Phaengsrisarn.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, þerna, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982. Maður hennar Ásgeir Hraundal.

Þóranna var með foreldrum sínum, en móðir hennar lést, er Þóranna var á þriðja árinu. Hún flutti með föður sínum til Eyja 1946 og bjó þar á Brekastíg 31 til 1948 og flutti þá með honum til Reykjavíkur.
Þóranna Halla fór til Kaupmannahafnar, vann þar um skeið. Hún vann síðar þernustörf á Hótel Borg.
Þau Ólafur Helgi giftust 1966, eignuðust eitt barn, sem var alið upp hjá Lárusi bróður hennar. Þau skildu.
Þóranna Halla lést 1982.

I. Maður Þórönnu Höllu, (1966, skildu) var Ólafur Helgi Gestsson frá Stykkishólmi, f. þar 1. desember 1929, d. 20. janúar 2004. Foreldrar hans voru Árilíus Gestur Sólbjartsson, f. 6. júní 1901 í Bjarneyjum á Breiðafirði, d. 13. apríl 1991 og Jakobína Helga Jakobsdóttir, f. 5. mars 1902 á Ísafirði, d. 24. september 1987.
Barn þeirra:
1. Bjarnfreður Heiðar Ólafsson lögfræðingur, f. 17. nóvember 1967. Hann var alinn upp af Lárusi móðurbróður sínum. Kona hans Hulda Gísladóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 29. janúar 2004. Minning Ólafs Helga.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.