Þóra Sigríður Sveinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2022 kl. 16:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2022 kl. 16:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þóra Sigríður Sveinsdóttir''' húsfreyja fæddist 27. september 1948.<br> Foreldrar hennar voru Sveinn Hjörleifsson frá Skálholti, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004, og kona hans Aðalheiður Maggý Pétursdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, f. 27. mars 1930, d. 26. september 2007. Börn Aðalheiðar Maggýjar og Sveins:<br> 1. Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 27. s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja fæddist 27. september 1948.
Foreldrar hennar voru Sveinn Hjörleifsson frá Skálholti, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004, og kona hans Aðalheiður Maggý Pétursdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, f. 27. mars 1930, d. 26. september 2007.

Börn Aðalheiðar Maggýjar og Sveins:
1. Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1948. Maður hennar Henry Ágúst Erlendsson, látinn.
2. Þórey Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1951. Maður hennar Einar Sveinbjörnsson, látinn.
3. Hjörleifur Sveinsson yngri, sjómaður, f. 27. desember 1954, d. 18. ágúst 2019. Fyrri konur hans Sigríður Lovísa Sigurðardóttir og Dagný Björt Konráðsdóttir.
4. Ólafur Pétur Sveinsson verkamaður, f. 30. maí 1958, d. 12. febrúar 2004, ókv.
5. Kristbjörg Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1965. Maður hennar Pétur Fannar Hreinsson.

Þóra var með foreldrum sínum í æsku, í SkálholtI eldra, á Hólagötu 36 og á Höfðavegi 2 .
Hún sótti fjölda námskeiða, m.a. ritvélanámskeið og tölvuskóla.
Þóra vann þjónustustörf, á Hótel HB, í Samkomuhúsinu og víðar. Þau Henry giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hrauntúni 2, síðar að Brimhólabraut 25.
Henrý lést 2018.

I. Maður Þóru, (19. nóvember 1967), var Henry Ágúst Erlendsson frá Jaðri, járn- og plötusmiður, tónlistarmaður, f. 15. nóvember 1946, d. 8. desember 2018.
Börn þeirra:
1. Sveinn Henrysson í Reykjavík, vöruflutningamaður, einn af eigendum Vaðvíkur ehf., f. 25. febrúar 1968. Barnsmóðir hans Fanney Herdís Magnúsdóttir. Kona hans Kristi Jo Kristinsson.
2. Helga Åberg Henrysdóttir húsfreyja, f. 7. október 1970. Maður hennar Ólafur Gunnarsson.
3. Arnþór Henrysson í Reykjavík, vöruflutningamaður, einn af eigendum Vaðvíkur ehf, f. 10. maí 1976. Barnsmóðir hans Nancy Lyn Jóhannsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.