Útgerðarsaga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 08:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 08:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Skipafloti Vestmannaeyja samanstendur mestmegnis af fiskiskipum sem eru í útgerð að minnsta kosti hluta ársins. Frá því að byggð hófst á Íslandi hafa Vestmannaeyjar verið mjög mikilvæg verstöð, en það hlutverk margefldist þegar vélbátavæðingin hófst. Ýmsir frægir eyjamenn voru sjómenn og má til dæmis nefna Binna í Gröf, aflakóng.

Vélbátaútgerð hófst í byrjun 20. aldar.

Vegna þess hve stutt er á miðin frá Vestmannaeyjum hafa eyjarnar skipað sér sess sem stærsta verstöð Íslands. Þegar mest var voru Vestmannaeyjar að skapa um þriðjung af útflutningstekjum þjóðarinnar, en þó voru ekki nema um 5% af þjóðinni búsett í Vestmannaeyjum á þeim tíma. Á seinni árum hefur hins vegar hallað undan fæti vegna flutnings á fiskikvóta milli byggða.

Útgerð er órjúfanlegur hluti af Vestmannaeyjum og verður því farið djúpt í sögu útgerðar hér.

FIVE Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum hefur verið einn hlekkur af mörgum í sögu útgerðar í Vestmannaeyjum. FES, Fiskimjölsverksmiðja Ísfélagsins er yngri en árlega framleiða þessar tvær verksmiðjur þúsundir tonna af mjöli og lýsi. Fiskvinnslufyrirtæki hafa verið mörg gegnum tíðina í Eyjum en í dag eru það tvö fyrirtæki sem bera höfuð og herðar yfir önnur, Vinnslustöðin ehf. og Ísfélag Vestmannaeyja hf.

20. öldin

Sjómenn að störfum.
Aukin atvinna í kjölfar vélvæðingar.
Hafnarframkvæmdir, netaveiðar og togarakaup.
Dragnótaveiðar, raflýsing og ör framþróun.
Dýpkunarskip kemur og upphaf togveiða.
Mikil bátasmíði og fleiri tilraunir til togaraútgerðar.
Nælon-þorsknet og fyrstu stálbátarnir.
Úthafssíldveiðar hefjast og stærri skip.
Skuttogarar koma til sögunnar og truflun vegna eldgoss.
Sóknarmark og kvótamark.
Kvóti minnkar.