Úr fórum Árna Árnasonar/Kveðið um Kohl

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. september 2013 kl. 11:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. september 2013 kl. 11:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ritverk Árna Árnasonar/Kveðið um Kohl á Úr fórum Árna Árnasonar/Kveðið um Kohl)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Um kaptein Kohl


Andreas August von Kohl var sýslumaður í Vestmannaeyjum frá 1853 þar til hann andaðist 22. janúar 1860.
Hann hafði verið í landher Dana og hlotið kapteins-nafnbót.
Hafði hann mikinn áhuga fyrir hernaði og hernaðaræfingum og kom á fót herliði í Vestmannaeyjum, sem hann æfði af miklu kappi.
Hann fék styrk úr ríkissjóði Dana til þess að æfa flokkinn og búa hann að vopnum. Einnig lagði J.P.T. Bryde kaupmaður fram styrk nokkurn til herliðsins.
Kohl var kvæntur maður, en kona hans kom aldrei til Vestmannaeyja.
Meðal almennings var Kohl mjög vinsæll, enda þótt hann væri refsingasamur og eftirgangssamur um sumt.
Mikill kvennamaður þótti hann vera.
Eftirfarandi vísur, sem talið er, að Jón Þorgeirsson halti, [bóndi á Oddsstöðum)], hafi ort, benda til þess, að sumir hafi verið óánægðir með refsingar hans og kvennafar:

Danakappi drjúgum hér
drengi flengja þorir.
Ráfar títt í Venus-ver,
vopna-grér það temur sér.
Hann er að kenna hermannssið,
hann er að renna um stræti,
hann er að grenna heill og frið,
hann er að spenna kvenfólkið.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit