Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Dapur er dauðinn kaldi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. október 2013 kl. 20:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. október 2013 kl. 20:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><center> Dapur er dauðinn kaldi</center></big> <center> (Eftir gömlu handriti í Landsbókasafninu)</center> Fy...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Dapur er dauðinn kaldi
(Eftir gömlu handriti í Landsbókasafninu)


Fyrir tveim árum drukknuðu margir menn af skipi milli lands og Eyja. Voru þeir úr Mýrdal og undan Eyjafjöllum. Gjörði hvasst útsynningsél um kvöldið og hugðu menn, að þeir hefðu farist. Um nóttina dreymdi kvenmann undan Eyjafjöllum, að einn maðurinn kæmi til sín og kvæði:

Mjög var órótt,
þá að dró nótt.
Dapur er dauðinn kaldi.
Mig þar að bar,
sem margur var
á lifandi manna landi.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit