Ömpustekkir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 22:38 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 22:38 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ömpustekkir eru hraunhólar í norðaustur frá Lyngfelli, sunnan við flugbrautina. Ekki vita menn lengur hvaðan nafnið kemur, en sagt er að Vilborgarstaðarbændur hafi haft þar stekki, þar sem fært var frá í Vestmannaeyjum, en þó aðeins um skamma hríð. Sumir segja, að Ampa kerling, sem búið hafi í Ömpuhjalli, hafi haft þar í stekkjum og séu hraunhólarnir leifar þeirra.

Á árum áður er sagt að reimt hafi verið sunnan við Ömpustekki, en þegar komið var norður fyrir þá, hætti allur reimleiki. (Sjá Verndarvættirnir í Ömpustekkjum)


Heimildir

  • Ömpustekkir, bls. 33. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977.