„Óskar Kárason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 28: Lína 28:
:''mannvalið eg mundi allt
:''mannvalið eg mundi allt
:''medalíum sæma.
:''medalíum sæma.
::::Óskar Kárason. ''Formannavísur.'' Vestmannaeyjum, 1950.
::Óskar Kárason. ''Formannavísur.'' Vestmannaeyjum, 1950.

=Frekari umfjöllun=
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Óskar Kárason]]
'''Óskar Kárason''' múrarameistari, byggingafulltrúi frá [[Presthús|Presthúsum]] fæddist 9. ágúst 1905 og lést 2. maí 1970.

Foreldrar hans voru [[Kári Sigurðsson]] bóndi í Presthúsum, f. 12. júlí 1880 í Selshjáleigu í V-Landeyjum, d. 10. ágúst 1925, og kona hans [[Þórunn Pálsdóttir]] húsfreyja, f. 12. nóvember 1879 í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, d. 25. mars 1965 í Reykjavík.

Kona Óskars Kárasonar var [[Anna Jesdóttir]], f. 2. desember 1902 að Eyvindarhólum undir Eyjafjöllum, d. 18. september 1994.
Börn Óskars og Önnu eru:

1. [[Ágústa Óskarsdóttir (Sunnuhól)|Ágústa]], f. 3. febrúar 1930.

2. [[Kári Óskarsson (Sunnuhól)|Kári]], f. 25. júlí 1931.

3. [[Þórir Óskarsson (Sunnuhól)|Þórir]], f. 19. september 1934.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Óskar Kárason er lágur vexti, en þrekinn, skolhærður, breiðleitur, en ljós yfirlitum. Hann er léttur í skapi, en bregður þó fyrir nokkuð þungri skapgerðar framkomu, en yfirleitt kátur, og í sínum hóp er hann hrókur fagnaðar, ræðinn, fróður og skemmtilegur. Lætur fjúka í kviðlingum.

Hann var veiðimaður góður, en hefir nú dregist nokkuð aftur úr vegna þjálfunarskorts. Hann hefir verið í [[Elliðaey]], [[Álsey]] og [[Hellisey]] og nokkuð á [[heimaland]]i.

Lífsstarf Óskars er múrverk, sem hann er meistari í og er nú byggingafulltrúi bæjarins. Óskar er hagmæltur vel og hefir gefið út eitt kver, „Formannavísur úr Eyjum“. Annað kver af formannavísum gaf hann út í apríl 1957, mest dróttkveðnar vísur og þungar. Hann var góður veiðimaður, kappsfullur og fylginn sér.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.}}

= Myndir =
= Myndir =

Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2013 kl. 21:54

Óskar
Hjónin Anna Jesdóttir og Óskar Kárason.

Óskar Kárason fæddist 9. ágúst 1905 að Vesturholtum undir Vestur- Eyjafjöllum. Hann lést 2. maí 1970. Foreldrar hans voru Kári Sigurðsson, Presthúsum, og Þórunn Pálsdóttir. Kona Óskars var Anna Jesdóttir, fædd 2. desember 1902, og áttu þau þrjú börn; Ágústu, Kára og Þóri. Óskar byggði Sunnuhól sem var heimili fjölskyldunnar til ársins 1971.

Óskar tók skipstjórapróf á námskeiði í Vestmannaeyjum árið 1923. Hann lauk sveinsprófi í múrsmíði 1933 í Iðnskólanum í Reykjavík og tók nokkrum árum síðar landmælingapróf .

Óskar stundaði sjóinn á yngri árum, eða þar til hann útskrifaðist sem múrari. Hann vann við múrsmíði frá 1933 til 1954 og var hann fyrsti lærði múrarinn í Eyjum. Hann var byggingafulltrúi Vestmannaeyja frá 1938.

Mikinn þátt tók Óskar í félagsstarfi. Átti hann þátt í stofnun ýmissa félaga.

Formannavísurnar

Óskar er frægur fyrir vísurnar sem hann samdi um formenn Eyjanna. Hann gaf út tvö rit með samansafni af vísunum. Fyrsta safnið kom út árið 1950 og annað árið 1956. Allar formannavísurnar eru hér á vefnum og eru vísurnar tengdar viðeigandi formönnum.

Ef mér væri frjálsum falt
formenn um að dæma,
mannvalið eg mundi allt
medalíum sæma.
Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Óskar Kárason

Myndir