Ólrikka Sveinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólrikka Sveinsdóttir frá Ásavegi 7, húsfreyja, þvottakona fæddist þar 20. september 1950.
Foreldrar hans Sveinn Sigurðsson frá Sveinsstöðum við Njarðarstíg, bifreiðastjóri, f. 31. maí 1928, og kona hans Haflína Ásta Ólafsdóttir frá Sauðanesi við Siglufjörð, húsfreyja, f. 8. ágúst 1932, d. 27. janúar 2024.

1. Ólrikka Sveinsdóttir húsfreyja, vinnur við þvotta, f. 20. september 1950 á Ásavegi 7. Maður hennar Þórólfur Þorsteinsson.
2. Drengur, f. 14. apríl 1952, d. 14. apríl 1952.
3. Sigurður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður, f. 17. júní 1953 að Ásavegi 7. Kona hans Þóra Ólafsdóttir.
4. Þór Jakob Sveinsson vinnuvélastjóri í Reykjavík, býr nú á Selfossi, f. 8. nóvember 1956 á Bessastíg 12. Kona hans Helga Þuríður Ágústsdóttir.
5. Rósa Sveinsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. september 1963. Maður hennar Guðni Hjörleifsson.
6. Jóna Sveinsdóttir, f. 21. júlí 1975. Sambúðarmaður Hilmar Ögmundsson.

Ólrikka var með foreldrum sínum í æsku, á Ásavegi 7, við Bessastíg 12 og á Höfðavegi 27.
Ólrikka er húsfreyja, hefur unnið við þvotta. Hún flutti til Keflavíkur 1985.
Þau Þórólfur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Reykjanesbæ.

I. Maður Ólrikku er Þórólfur Þorsteinsson, iðnverkamaður, tónlistarmaður, f. 27. mars 1949. Foreldrar hans Þorsteinn Jóhann Sigurðsson frá Búðum í Fáskrúðsfirði, f. 27. apríl 1919, d. 28. maí 2015, og Aðalbjörg Magnúsdóttir frá Reyðarfirði, f. 17. desember 1923, d. 26. desember 2018.
Börn þeirra:
1. Marína Ósk Þórólfsdóttir, tónlistarmaður, söngkona, tónlistarkennari, f. 23. júní 1987. Sambúðarmaður hennar er Martin af dönskum ættum.
2. Helena Rós Þórólfsdóttir, starfsmaður leikskóla, f. 21. ágúst 1990. Maður hennar Ingi Freyr Hilmarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.