Ólafur Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Sigurðsson fæddist 14. október 1915 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sigurður Oddsson og Ingunn Jónasdóttir í Skuld.

Ólafur hóf formennsku þegar hann var 19 ára gamall á Skallagrím. Seinna var hann meðal annars formaður með Freyju, Helga og Ófeig II.

Ólafur var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1964.