Ólafur Hermannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 21:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 21:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Hermannsson er fæddur í Vestmannaeyjum 1. október 1961. Foreldrar hans eru Hermann Pálsson, sjómaður og vörubílstjóri, fæddur í Vestmannaeyjum 1926, látinn 1999, en hann bjó ásamt móður sinni að Staðarhóli við Kirkjuveg og Margrét Ólafsdóttir, húsmóðir og verkakona, fædd í Vestmannaeyjum 1930, en hún bjó um tíma að Baldri að Brekastíg 22.

Ólafur bjó öll sín uppvaxtarár að Vallargötu 16 sem faðir hans byggði. Hann lærði húsasmíði í Iðnskólanum í Vestmannaeyjum og lauk þaðan sveinsprófi 1981. Meistarabréf í húsasmíði fékk hann 1999.

Hann lauk B.Sc. prófi í byggingatæknifræði frá Tækniháskóla Íslands árið 1987 og hefur starfað hjá VSÓ Ráðgjöf í Reykjavík frá 1989.

Ólafur var virkur í starfsemi Taflfélags Vestmannaeyja á árunum 1975-1982. Árið 1977 varð hann Unglingameistari Vestmannaeyja. Hann var formaður Taflfélags Vestmannaeyja 1979-1982. Ólafur flutti frá Eyjum 1984.

Hann hefur alla tíð verið félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og hefur teflt undir merkjum þess á Íslandsmóti skákfélaga með hléum undanfarin ár. Ólafur er meðlimur í skákklúbbnum Frakkalafinu frá 1993, en klúbburinn hefur starfað óslitið frá 1979.

Eiginkona Ólafs er María J. Ammendrup, B.A. í sálfræði og M.A. í félagsfræði. Hún starfar hjá Advania í Reykjavík. Synir þeirra eru Páll, fæddur 1987 og Ólafur, fæddur 1996. Þau búa í Garðabæ.



Heimildir