Ólafur Elísson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 14:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 14:03 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Elísson var bæjarstjóri Vestmannaeyja frá 1982 til 1986. Ólafur fæddist þann 24. júlí 1953 í Reykjavík. Foreldrar hans eru Elís Kristjánsson, húsasmíðameistari, og Anna Óskarsdóttir, húsmóðir.

Ólafur varð stúdent frá Verslunarskóla Íslands árið 1974 og síðar cand. oecon. frá Háskóla Íslands. Hann varð löggiltur endurskoðandi árið 1982. Hann var starfsmaður bæjarsjóðs Njarðvíkur og síðar hjá Endurskoðunarskrifstofu Sigurðar Stefánssonar sf. í Reykjavík og Vestmannaeyjum með námi og til 1982. Ólafur var formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. Ólafur hefur starfað sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja frá árinu 2000.

Ólafur kvæntist árið 1976 Stellu Skaptadóttur og eiga þau saman 3 börn, Sjöfn, Skapta og Hlín.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason: Við Ægisdyr. Saga Vestmannaeyjabæjar, seinna bindi. Reykjavík, 1991.