Ólafshús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. febrúar 2013 kl. 19:36 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. febrúar 2013 kl. 19:36 eftir Þórunn (spjall | framlög) (Bætt við myndum)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ólafshús og Búastaðir í austri.

Í jaðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns sem kennd er við 1703 kemur fram húsnafnið Ólafshús í Vestmannaeyjum. Þá er ábúandi Sigurður Pétursson og voru sex heimilismenn á þeim tíma.

Jörðinni Ólafshúsum fylgir ma. sauðbeit í Álfsey, fimtán sem gamlir menn segjast heyrt hafa eins og þar stendur orðrétt. Að endingu er tekið fram að jörðinni fylgir hjallur í Skapasandi og fiskigarðar fyrir innan Skildingafjöru.

Þetta sannar að jörðin og húsnafnið Ólafshús er síðan fyrir 1703

Húsið Ólafshús stóð austur á Eyju og fór það undir hraun snemma í gosinu. Síðasti ábúandinn, Erlendur Jónsson (Elli í Ólafshúsum), færði nafnið yfir á það hús sem hann fluttist í eftir gos. Það hús er á Brimhólabraut 36.

Ólafshús komið undir gjall. Áki Heinz skoðar inn.
Þegar húsið var grafið upp eftir gos.