Ísbjörg Hallgrímsdóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Ísbjörg Hallgrímsdóttir frá Felli ´Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 19. október 1908 og lést 6. nóvember 1995.
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Brynjólfsson bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 1. september 1870 á Litlu-Heiði í Mýrdal, d. 24. júlí 1937 í Eyjum, og kona hans Sigurveig Sveinsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 29. ágúst 1868, d. 19. apríl 1955.

Börn Sigurveigar og Hallgríms:
1. Sveinn Hallgrímsson, f. 17. ágúst 1896, d. 1. apríl 1897.
2. Sveinn Hallgrímsson verkstjóri, f. 24. september 1897, d. 16. nóvember 1982. Fyrri kona Guðríður Grímsdóttir. Síðari kona Ragnheiður Svanlaugsdóttir.
3. Vilhjálmur Kristinn Hallgrímsson rafvirki í Reykjavík, f. 10. apríl 1899, d. 28. janúar 1997. Kona hans Hulda Ragnheiður Jónsdóttir.
4. Sigurleif Hallgrímsdóttir sjúkraþjálfari, f. 1. júlí 1900, d. 7. nóvember 1995.
5. Jónas Hallgrímsson blikksmiður í Reykjavík, f. 2. apríl 1902, d. 4. janúar 1988. Kona hans Sigríður Sóley Sveinsdóttir.
6. Brynjólfur Hallgrímsson, f. 1. ágúst 1903, d. 19. janúar 1915.
7. Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 4. apríl 1905, d. 30. mars 2004. Maður hennar Sigurður Friðriksson.
8. Þorgerður Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1906, d. 11. febrúar 1982. Maður hennar, skildu, var Oddsteinn Friðriksson.
9. Ísbjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. október 1908, d. 16. nóvember 1995. Maður hennar Þorsteinn Halldórsson.
10. Jón Hallgrímsson verkamaður í Vík í Mýrdal, f. 21. apríl 1910, d. 2. júní 2005. Kona hans Steinvör Sigríður Jónsdóttir.
11. Erlendur Hallgrímsson loftskeytamaður, f. 18. nóvember 1911, fórst með togaranum Sviða 2. desember 1941. Kona hans Sigríður Sveinsdóttir.
12. Brynjólfur Þorgrímur Hallgrímsson verkamaður, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 18. maí 1913, d. 18. október 1991. Kona hans Þórhalla Friðriksdóttir.
Börn Hallgríms og Guðrúnar Einarsdóttur:
14. Jóhann Magnús Hallgrímsson trésmiður á Hellu, f. 23. september 1911, d. 1. janúar 1982. Fyrri kona hans Guðríður Jónasdóttir. Síðari kona hans Petrína Jakobsson.
15. Óskar Maríus Hallgrímsson rafvirki, rafmagnseftirlitsmaður í Mosfellsbæ, f. 18. mars 1922, d. 4. október 2009. Kona hans Margrét Ragna Jóhannsdóttir.

Ísbjörg var með foreldrum sínum á Felli til 1926, var vinnukona þar 1926-1929, er hún fór til Eyja.
Hún fór til Rvk, giftist Þorsteini 1933. Þau eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Reykjavík.
Þorsteinn lést 1988 og Ísbjörg 1995.

I. Maður Ísbjargar, (2. desember 1933), var Þorsteinn Halldórsson bifreiðastjóri í Rvk, f. 2. desember 1908, d. 3. október 1988. Foreldrar hans voru Halldór Magnús Þorsteinsson trésmiður, f. 28. febrúar 1875, d. 15. mars 1921, og kona hans Gíslína Pétursdóttir húsfreyja, f. 22. júlí 1874, d. 13. október 1949.
Börn þeirra:
1. Ragnheiður Elllen Þorsteinsdóttir, f. 5. mars 1933. Maður hennar Jón Kristinsson
2. Hallgrímur Birgir Þorsteinsson, f. 9. apríl 1937. Kona hans Rósa Jónsdóttir.
3. Sigurleif Brynja Þorsteinsdóttir, f. 27. október 1948. Maður hennar Sigurður Hlöðversson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 28. nóvember 1995. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.