Íþróttafélagið Þór

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 17:10 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 17:10 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Mikil vakning var í æskulýðsmálum í byrjun annars áratugs 20. aldarinnar. Steinn Sigurðsson skólastjóri beitti sér fyrir hreyfingu unga fólksins. Hann kenndi sund, glímu og knattspyrnu. Þetta var í nafni Ungmennafélags Vestmannaeyja. Það starf dó þegar Steinn Sigurðsson flutti frá Eyjum. En áður hafði íþróttakennari komið frá Reykjavík og haldið námskeið fyrir unga fólkið. Þessi kennari sem hét Guðmundur Sigurjónsson beitti sér fyrir stofnun sérstaks íþróttafélags. Stofnfundur þessa nýja íþróttafélags var 9. september 1913.Stofnfélagar voru 33 og voru þar á meðal margir nafnkunnir menn í bæjarfélaginu. Markmið Þórs voru í upphafi að auka líkamlegan og andlegan mátt æskulýðs byggðarlagsins, bæði pilta og stúlkna. Tíu árum eftir stofnun Þórs kom Týr inn í myndina. Þessi tvö félög gátu ekki verið án hvors annars. Félögin efldu hvort annað, skerptu keppnisviljann, brýndu fórnarviljann og juku félagsþroska félaga sinna.

Formenn Íþróttafélagsins Þórs frá stofnun þess 1913