„Íþróttafélagið Þór“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá 1 notanda)
Lína 1: Lína 1:
Mikil vakning var í æskulýðsmálum í byrjun annars áratugar 20. aldarinnar. [[Steinn Sigurðsson]] skólastjóri beitti sér fyrir hreyfingu unga fólksins. Hann kenndi sund, glímu og knattspyrnu. Þetta var í nafni [[Ungmennafélag Vestmannaeyja|Ungmennafélags Vestmannaeyja]]. Það starf dó þegar Steinn Sigurðsson flutti frá Eyjum. En áður hafði íþróttakennari komið frá Reykjavík og haldið námskeið fyrir unga fólkið. Þessi kennari, sem hét Guðmundur Sigurjónsson, beitti sér fyrir stofnun sérstaks íþróttafélags. Stofnfundur þessa nýja íþróttafélags var 9. september 1913 í [[Borg|Þinghúsinu]]. Stofnfélagar voru 13 og voru þar á meðal margir nafnkunnir menn í bæjarfélaginu. Markmið Þórs voru í upphafi að auka líkamlegan og andlegan mátt æskulýðs byggðarlagsins, bæði pilta og stúlkna.
Mikil vakning var í æskulýðsmálum í byrjun annars áratugar 20. aldarinnar. [[Steinn Sigurðsson (skólastjóri)|Steinn Sigurðsson]] skólastjóri beitti sér fyrir hreyfingu unga fólksins. Hann kenndi sund, glímu og knattspyrnu. Þetta var í nafni [[Ungmennafélag Vestmannaeyja|Ungmennafélags Vestmannaeyja]]. Það starf dó þegar Steinn Sigurðsson flutti frá Eyjum. En áður hafði íþróttakennari komið frá Reykjavík og haldið námskeið fyrir unga fólkið. Þessi kennari, sem hét Guðmundur Sigurjónsson, beitti sér fyrir stofnun sérstaks íþróttafélags. Stofnfundur þessa nýja íþróttafélags var 9. september 1913 í [[Borg|Þinghúsinu]]. Stofnfélagar voru 13 og voru þar á meðal margir nafnkunnir menn í bæjarfélaginu. Markmið Þórs voru í upphafi að auka líkamlegan og andlegan mátt æskulýðs byggðarlagsins, bæði pilta og stúlkna.
[[Mynd:Jsþ 0191 Knattspyrnuhópur Þórs.jpg|thumb|300px|1. flokkur Þórs árið 1956.]]
[[Mynd:Jsþ 0191 Knattspyrnuhópur Þórs.jpg|thumb|300px|1. flokkur Þórs árið 1956.]]


Lína 19: Lína 19:
* [[Guðmundur Helgason]] - 1924-1926
* [[Guðmundur Helgason]] - 1924-1926
* [[Georg Gíslason]] frá [[Stakkagerði]] - 1927-1932
* [[Georg Gíslason]] frá [[Stakkagerði]] - 1927-1932
* [[Jón Ólafsson]] frá [[Garðhúsum]] 1932-1942
* [[Jón Ólafsson (Garðhúsum)|Jón Ólafsson]] frá [[Garðhúsum]] 1932-1942
* [[Ingólfur Arnarson]] útgerðarmaður 1942-1949 og 1952-1954
* [[Ingólfur Arnarson]] útgerðarmaður 1942-1949 og 1952-1954
* [[Kristján Georgsson]] Gíslasonar 1949-1952
* [[Kristján Georgsson]] Gíslasonar 1949-1952
Lína 26: Lína 26:
* [[Sveinn Ársælsson]] Sveinssonar 1959-1962
* [[Sveinn Ársælsson]] Sveinssonar 1959-1962
* [[Axel Lárusson|Axel Ó. Lárusson]] kaupmaður 1962-1964 og 1970-1972
* [[Axel Lárusson|Axel Ó. Lárusson]] kaupmaður 1962-1964 og 1970-1972
* [[Ólafur Sigurðsson]] 1964
* [[Ólafur Sigurðsson (Skuld)|Ólafur Sigurðsson]] 1964
* [[Alexander Guðmundsson]] 1965-1967
* [[Alexander Guðmundsson]] 1965-1967
* [[Jón Kr. Óskarsson]]1967-1970
* [[Jón Kr. Óskarsson]]1967-1970

Núverandi breyting frá og með 11. júní 2013 kl. 22:11

Mikil vakning var í æskulýðsmálum í byrjun annars áratugar 20. aldarinnar. Steinn Sigurðsson skólastjóri beitti sér fyrir hreyfingu unga fólksins. Hann kenndi sund, glímu og knattspyrnu. Þetta var í nafni Ungmennafélags Vestmannaeyja. Það starf dó þegar Steinn Sigurðsson flutti frá Eyjum. En áður hafði íþróttakennari komið frá Reykjavík og haldið námskeið fyrir unga fólkið. Þessi kennari, sem hét Guðmundur Sigurjónsson, beitti sér fyrir stofnun sérstaks íþróttafélags. Stofnfundur þessa nýja íþróttafélags var 9. september 1913 í Þinghúsinu. Stofnfélagar voru 13 og voru þar á meðal margir nafnkunnir menn í bæjarfélaginu. Markmið Þórs voru í upphafi að auka líkamlegan og andlegan mátt æskulýðs byggðarlagsins, bæði pilta og stúlkna.

1. flokkur Þórs árið 1956.

Á stofnfundinum var félaginu gefið nafnið Þór, en alls komu sjö nafngiftir til greina. Ekki er getið í fundargerðarbókum hverjar hinar tillögurnar eru. Þá voru lög fyrir félagið samþykkt í 10 aðalgreinum. Í 2. gr. laganna segir: „Tilgangur félagsins er að iðka alls konar íþróttir og glæða áhuga manna á þeim.“ Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir Georg Gíslason, formaður, Haraldur Eiríksson, féhirðir og Sigurður Jónsson, skósmiður í Péturshúsi, var ritari.

Tveimur dögum eftir aðalfund félagsins komu stofnfélagar saman til fundar. Á fundinum var tekin ákvörðun um að senda mann til Reykjavíkur til náms. Skyldi hann taka að sér íþróttakennslu félagsins þegar hann kæmi aftur heim. Haraldur Eiríksson, fyrrverandi rafvirkjameistari, var valinn til ferðarinnar. Strax um haustið 1913 byrjuðu íþróttaæfingar félagsins, en fyrsta árið var eingöngu um að ræða íslenska glímu, sem iðkuð var. Fljótlega varð starfsemi félagsins fjölbreyttari og knattspyrna, frjálsar íþróttir, sund og leikfimiæfingar voru einnig iðkaðar.

Gefið var út félagsblað á fyrstu árum Þórs og hét það Mjölnir. Fyrsta tölublaðið var lesið upp á félagsfundi 20. janúar 1919. Þá var stofnuð sérstök kvennadeild í handknattleik 9. desember 1929.

Átta árum eftir stofnun Þórs eða árið 1921, kom Knattspyrnufélagið Týr til sögunnar. Segja má að þessi tvö félög hafi ekki getað verið hvort án annars, því félögin efldu hvort annað, skerptu keppnisviljann, brýndu fórnarviljann og juku félagsþroska félaga sinna. Sameiginlega réðust félögin í að endurbæta völlinn við Hástein um miðjan þriðja áratuginn, en í nokkur ár hafði ekkert verið gert í vallarmálum. Var völlurinn við Hástein notaður til ársins 1937, er íþróttasvæðið inni við Botn var tekið í notkun. Allmörgum árum síðar var svo aftur farið á svæðið við Hástein þar sem nú er aðalleikvangur knattspyrnunnar.

Árið 1996 var Íþróttafélagið Þór lagt niður og sameinað Knattspyrnufélaginu Tý undir merkjum ÍBV.

Formenn Íþróttafélagsins Þórs frá stofnun þess 1913


Heimildir

  • Þór Í. Vilhjálmsson: Íþróttafélagið Þór 70 ára. 70 ára afmælisrit Íþróttafélagsins Þórs. 1983.