Ég veit þú kemur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2005 kl. 15:54 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2005 kl. 15:54 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ég veit þú kemur

Ég veit þú kemur í kvöld til mín

þó kveðjan væri stutt í gær

ég trúi ekki á orðin þín

ef annað segja stjörnur tvær


Og þá mun allt verða eins og var

sko áður en þú veist, þú veist

og þetta eina sem út af bar

okkar á milli í friði leyst


Og seinna þegar tunglið

hefur tölt um langan veg

þá tölum við um drauminn

sem við elskum þú og ég


Ég veit þú kemur í kvöld til mín

þó kveðjan væri stutt í gær

og trúi ekki á orðin þín

ef annað segja stjörnur tvær