Ásta Skæringsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2021 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2021 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásta Skæringsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Ragnheiður Skæringsdóttir frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, verkakona fæddist þar 3. nóvember 1913 og lést 4. október 1994 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Skæringur Sigurðsson bóndi, f. þar 14. mars 1886, d. 27. febrúar 1973, og kona hans Kristín Ámundadóttir frá Bjólu í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja, f. þar 13. apríl 1886, d. 26. september 1932.
Börn Kristínar og Skærings:
1. Sigríður Skæringsdóttir, f. 31. mars 1907, d. 26. janúar 1908.
2. Sigurþór Skæringsson bóndi á Rauðafelli, síðar verkamaður í Þorlákshöfn, f. 6. júlí 1909, d. 1. desember 2001. Kona hans Bergþóra Auðunsdóttir.
3. Aðalbjörg Skæringsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 23. mars 1911, d. 28. maí 1997. Maður hennar Hermann Guðjónsson.
4. Einar Skæringsson verkamaður í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 16. júní 1912, d. 10. mars 2004. Kona hans Guðríður Konráðsdóttir.
5. Ásta Ragnheiður Skæringsdóttir verkakona, síðar í Reykjavík, f. 3. nóvember 1913, d. 4. október 1994. Barnsfaðir hennar Gestur Auðunsson.
6. Baldvin Skæringsson smiður, síðar í Mosfellsbæ, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006. Kona hans Þórunn Elíasdóttir.
7. Georg Skæringsson verkamaður, síðar húsvörður, f. 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988. Kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir.
8. Jakob Skæringsson verkamaður í Reykjavík, f. 2. febrúar 1917, d. 30. ágúst 1965. Kona hans Rósa Þorsteinsdóttir, látin.
9. Sveinborg Anna Skæringsdóttir saumakona, síðar í Reykjavík, f. 15. júní 1919, d. 21. nóvember 1982.
10. Rútur Skæringsson smiður í Vík í Mýrdal, f. 29. apríl 1921, d. 7. ágúst 1997. Kona hans Guðríður Jónsdóttir.
11. Guðfinna Skæringsdóttir, f. 26. október 1922, d. 18. apríl 1925.
12. Guðmann Skæringsson smiður, síðar starfsmaður ÍSALS, f. 29. nóvember 1925, d. 13. mars 2006. Kona hans Bjarnfríður Ósk Alfreðsdóttir.
13. Andvana stúlka, f. 4. ágúst 1927.
14. Kristinn Skæringsson skógfræðingur í Kópavogi, f. 25. apríl 1932. Kona hans Þorbjörg Jóhannesdóttir.

Ásta Ragnheiður var með foreldrum sínum í æsku.
Móðir hennar lést 1932 og Ásta var ráðskona hjá föður sínum í nokkur ár, var kaupakona tvö sumur hjá Þorbirni og Helgu á Kirkjubæ. Hún flutti til Eyja, var verkakona í Baldurshaga við Vesturveg 5A og flutti til Reykjavíkur 1959.
Ásta átti við sjúkdóm að stríða, sem krafðist tíðra læknisaðgerða og varð hún öryrki hans vegna.
Hún eignaðist barn með Gesti 1944.
Ásta Ragnheiður lést 1994.

I. Barnsfaðir Ástu var Gestur Auðunsson sjómaður, vélstjóri, matsveinn, verkstjóri, verktaki, f. 23. júní 1915 á Þykkvabæjarklaustri, d. 18. desember 1999.
Barn þeirra:
1. Rafn Eyfell Gestsson smiður í Reykjavík, húsvörður, býr nú í Kópavogi f. 23. maí 1944. Kona hans Svandís Ingibjartsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.