Ásta Garðarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Garðarsdóttir húsfreyja fæddist 12. maí 1965 í Eyjum og lést 27. mars 1999.
Foreldrar hennar voru Sigurður Garðar Ásbjörnsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarstjóri, f. 27. mars 1932, d. 7. maí 2012, og kona hans Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022.

Ásta var með foreldrum sínum, við Illugagötu 10 og Túngötu 3.
Hún vann verslunarstörf og í leikskóla.
Þau Karl hófu búskap 1984, giftu sig 1999, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Vallargötu 18.
Ásta lést 1999.

I. Maður Ástu, (1984, gift 12. febrúar 1999), er Karl Björnsson læknir, f. 30. september 1962.
Börn þeirra:
1. Björn Ívar Karlsson yngri, f. 23. febrúar 1985.
2. Berlind Karlsdóttir , f. 27. júlí 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.