„Ásta Böðvarsdóttir (Ásum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ásta Böðvarsdóttir''' frá Ásum við Skólaveg 47, verkakona, húsfreyja á Sæfelli á Eyrarbakka fæddist 22. september 1922 í Reykjavík og lést 1. ágúst 1993.<br> Foreldrar hennar voru Böðvar Ingvarsson frá Koti á Rangárvöllum, verkstjóri, f. þar 29. ágúst 1893, d. 26. desember 1981 og kona hans Ólafía Halldórsdóttir frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja, f. þar...)
 
m (Verndaði „Ásta Böðvarsdóttir (Ásum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. september 2022 kl. 17:47

Ásta Böðvarsdóttir frá Ásum við Skólaveg 47, verkakona, húsfreyja á Sæfelli á Eyrarbakka fæddist 22. september 1922 í Reykjavík og lést 1. ágúst 1993.
Foreldrar hennar voru Böðvar Ingvarsson frá Koti á Rangárvöllum, verkstjóri, f. þar 29. ágúst 1893, d. 26. desember 1981 og kona hans Ólafía Halldórsdóttir frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja, f. þar 8. ágúst 1894, d. 11. maí 1988.

Börn Ólafíu og Böðvars:
1. Ásdís Böðvarsdóttir, f. 11. ágúst 1919, d. 21. apríl 1925.
2. Ólafía Dóra Böðvarsdóttir, f. 3. mars 1921, d. 12. september 1921.
3. Ásta Böðvarsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1922, d. 1. ágúst 1993. Maður hennar Halldór Sigmar Guðmundsson, látinn.
4. Marta Sigríður Böðvarsdóttir, f. 4. júní 1924 á Grímsstöðum, d. 20. september 2002.
5. Guðmundur Ármann Böðvarsson, f. 19. júlí 1926 á Hallormsstað, d. 5. febrúar 2005. Kona hans Jóna Þuríður Bjarnadóttir.
6. Ásdís Böðvarsdóttir húsfreyja á Djúpavogi, f. 28. mars 1928 á Hallormsstað, d. 8. október 2002. Maður hennar Þórður Snjólfsson.
7. Aðalheiður Dóra Böðvarsdóttir, f. 28. maí 1929 á Hallormsstað, d. 27. október 2003.
8. Hilmar Böðvarsson, f. 16. janúar 1931 í Vallanesi, d. 4. nóvember 2017. Kona hans Sæbjörg Jónsdóttir.
9. Bergþór Reynir Böðvarsson, f. 15. maí 1934 á Ásum, d. 19. nóvember 2013. Kona hans Sigurlaug Vilmundardóttir, látin.

Ásdís var með foreldrum sínum, flutti með þeim frá Reykjavík til Eyja 1922, bjó með þeim á Rafnseyri 1922, á Grímsstöðum 1924, á Hallormsstað 1926, í Vallanesi 1930 og 1933, í Ásum frá 1934.
Þau Halldór Sigmar giftu sig 1947, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Sæfelli á Eyrarbakka.
Ásta lést 1993 og Halldór Sigmar 2008.

I. Maður Ástu, (26. desember 1947), var Halldór Sigmar Guðmundsson bóndi, verkamaður, f. 16. apríl 1918 í Mýrarkoti í Grímsnesi, Árn., d. 25 apríl 2008 á Selfossi. Foreldrar hans voru Guðmundur Björnsson bóndi, f. 30. desember 1882 á Bjarnastöðum í Grímsnesi, d. 31. janúar 1969 og kona hans Þóranna Theódóra Árnadóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1882 á Þóroddsstöðum í Grímsnesi, d. 7. febrúar 1954.
Börn þeirra:
1. Böðvar Ingvars Halldórsson, f. 26. júní 1948 á Eyrarbakka, skírður í Eyjum. Kona hans Halla Emilía Jónsdóttir.
2. Guðríður Ásta Halldórsdóttir, f. 9. janúar 1953. Síðari maður hennar Jón Sighvatsson.
3. Ólafía Anna Halldórsdóttir, f. 4. nóvember 1955. Sambúðarmaður hennar Vigfús Guðmundsson.
4. Ingveldur Dagmar Halldórsdóttir, f. 16. ágúst 1957. Maður hennar Guðmundur Stefánsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.