Ásta Þórðardóttir (Bergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. maí 2020 kl. 15:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. maí 2020 kl. 15:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ásta og Óskar með Þórðu Berg.

Jónína Ásta Þórðardóttir frá Bergi, húsfreyja fæddist 27. nóvember 1918 og lést 28. september 1995.
Foreldrar hennar voru Þórður Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, skipstjóri, skipasmiður, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939, og bústýra hans Kristín Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1889, d. 4. apríl 1982.

Börn Kristínar og Þórðar:
1. Jónína Ásta Þórðardóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1918, d. 28. september 1995.
2. Bergþóra Þórðardóttir húsfreyja, f. 16. mars 1924, d. 16. júlí 2004.

Barn Þórðar og Sigríðar Guðmundsdóttur frá Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, vinnukonu á Bergi, síðar húsfreyja í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum, f. 13. ágúst 1886, d. 19. júní 1956:
3. Jóhann Gunnar Þórðarson, f. 9. mars 1919, d. 9. febrúar 1920.

Barn Þórðar og Guðrúnar Þórðardóttur verkakonu, f. 31. ágúst 1882, d. 1. mars 1978:
4. Jón Sigurður Þórðarson skipasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017.

Barn Þórðar og Petrúnar Ólafar Ágústsdóttur, f. 14. maí 1898 á Nesi í Norðfirði, d. 5. mars 1985:
5. Sveinbjörg Alma Þórðardóttir, f. 22. desember 1925, d. 28. mars 1936 af Keflavíkurbrunanum.

Börn Þórðar og konu hans Kristbjargar Stefánsdóttur húsfreyju, síðar í Skálanesi, f. 12. júlí 1896, d. 8. mars 1984:
6. Álfheiður Lára Þórðardóttir í Skálanesi, f. 26. febrúar 1928, d. 28. desember 2005.
7. Oddný Guðbjörg Þórðardóttir í Skálanesi, f. 15. ágúst 1929, d. 23. október 1998.
8. Ingibjörg Jónína Þórðardóttir í Skálanesi, f. 11. ágúst 1932.
9. Þóra Þórðardóttir í Skálanesi, f. 16. apríl 1939.

Ásta var með foreldrum sínum á Bergi 1920, með móður sinni þar 1930 og 1940.
Þau Óskar giftu sig 1941, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu með Þórðu Berg á Bergi 1945 og 1949, síðar á Brimhólabraut 15.
Óskar var skipstjóri á Guðrúnu VE og fórst með henni 1953.
Ásta var verslunarstjóri Markaðarins í Eyjum, síðan afgreiðslumaður hjá Parísarbúðinni og í vinnueftirliti hjá Vinnslustöðinni.
Ásta bjó á með Þórðu og Birki á Brimhólabraut 15 við Gos. Hún bjó þar enn við andlát 1995.

I. Maður Jónínu Ástu, (31. maí 1941), var Óskar Eyjólfsson frá Laugardal skipstjóri, f. 10. janúar 1917, drukknaði 23. febrúar 1953.
Börn þeirra:
1. Þórða Berg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 3. desember 1941 á Bergi, Bárugötu 4.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.