Ásta Ólafsdóttir (Höfðavegi 27)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 13:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 13:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásta Ólafsdóttir (Höfðavegi 27)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Haflína Ásta Ólafsdóttir frá Sauðanesi við Siglufjörð, húsfreyja fæddist 8. ágúst 1932 á Siglufirði.
Foreldrar hennar voru Ólafur Steingrímur Eiríksson frá Hóli í Ólafsfirði, verkamaður þá til heimilis á Hlíðarvegi 15C á Siglufirði, f. 24. júní 1897, d. 16. desember 1985, og kona hans Friðrika Jónasína Margrét Björnsdóttir frá Sigríðarstöðum í Fljótum í Skagafirði, húsfreyja, f. 14. september 1900 í Borgargerði þar, d. 3. febrúar 1990. Fósturforeldrar frá 4-5 ára aldri voru vitavarðarhjónin á Sauðanesi við Siglufjörð, Jón Helgason, f. 25. apríl 1896 í Mjóafirði eystra, d. 11. febrúar 1970, og Jóna Sigurborg Jónsdóttir, f. 5. janúar 1903 á Grund í Mjóafirði eystra, d. 2. maí 1996.

Ásta kom til Eyja 15 áragömul, var í vist hjá Sigurjóni Högnasyni í eitt ár, síðar starfsmaður á Sjúkrahúsinu.
Þau Sveinn giftu sig 1950, eignuðust fimm börn, en misstu annað barn sitt nýfætt. Þau bjuggu á Ásavegi 7 og Bessastíg 12, búa á Höfðavegi 27.

I. Maður Ástu, (20. desember 1950), er Sveinn Sigurðsson bifreiðastjóri, f. 31. maí 1928 á Sveinsstöðum.
Börn þeirra:
1. Ólrikka Sveinsdóttir húsfreyja, vinnur við þvotta, f. 20. september 1950 á Ásavegi 7. Maður hennar Þórólfur Þorsteinsson.
2. Drengur, f. 14. apríl 1952, d. 14. apríl 1952.
3. Sigurður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður, f. 17. júní 1953 að Ásavegi 7. Kona hans Þóra Ólafsdóttir.
4. Þór Jakob Sveinsson vinnuvélastjóri í Reykjavík, býr nú á Selfossi, f. 8. nóvember 1956 á Bessastíg 12. Kona hans Helga Ágústsdóttir.
5. Rósa Sveinsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. september 1963. Maður hennar Guðni Hjörleifsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.