„Ásdís Jóhannsdóttir (Litlu-Fagurlyst)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ásdís Jóhannsdóttir (Fagurlyst-litlu)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 17. febrúar 2023 kl. 17:47

Ásdís Jóhannsdóttir frá Litlu-Fagurlyst við Urðaveg 18, húsfreyja, framkvæmdastýra fæddist þar 27. maí 1939.
Foreldrar hennar voru Jóhann Stígur Þorsteinsson frá Brekkum í Mýrdal, pakkhúsmaður, verkamaður, ljósmyndari, f. 3. september 1897, d. 17. ágúst 1970, og kona hans Kristín Filippía Guðmundsdóttir frá Ketilsstöðum í Mýrdal, húsfreyja, f. 30. september 1903, d. 14. ágúst 1990.

Börn Kristínar og Jóhanns Stígs:
1. Sigurgeir Jóhannsson sjómaður, matreiðslumeistari, f. 14. maí 1927, d. 11. júní 2018. Kona hans Sigríður Guðmundsdóttir, látin.
2. Ásdís Jóhannsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 27. maí 1933. Maður hennar Ingi Vignir Jónasson, látinn.
3. Fríða Dóra Jóhannsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, veitingakona, f. 18. mars 1939, d. 28. maí 2022. Maður hennar Gunnlaugur Axelsson, látinn.

Ásdís var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann ýmis störf, rak fyrirtækið Bæjarverk á Akureyri með Vigni.
Þau Vignir giftu sig, eignuðust fjögur börn og fósturbarn, en fyrsta barn þeirra fæddist andvana. Þau bjuggu í fyrstu í Litlu-Fagulyst, síðan við Bakkastíg 8.
Þau fluttu til Akureyrar, bjuggu síðast í Skessugili 8 þar.
Vignir lést 2011.

I. Maður Ásdísar var Ingi Vignir Jónasson verkamaður, framkvæmdastjóri, f. 24. nóvember 1932, d. 11. apríl 2011.
Börn þeirra:
1. Jóna Ósk Vignisdóttir, húsfreyja, framkvæmdastjóri á Hauganesi, f. 11. maí 1958 í Eyjum. Maður hennar Jón A. Gestsson.
2. Þorsteinn Hallgrímur Vignisson framkvæmdastjóri á Akureyri, f. 31. júlí 1961 í Eyjum. Kona hans Helga Birgisdóttir.
3. Fríða Dóra Vignisdóttir verslunarmaður á Akureyri, f. 18. mars 1970. Maður hennar Sigurjón Egill Jakobsson.
Fósturbarn þeirra:
4. Vignir Jóhann Þorsteinsson, f. 24. september 1976. Kona hans Þóra Bryndís Hjaltadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.