Ásdís Böðvarsdóttir (Ásum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2021 kl. 11:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2021 kl. 11:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ásdís Böðvarsdóttir.

Ásdís Böðvarsdóttir frá Ásum, húsfreyja á Djúpavogi fæddist 28. mars 1928 á Hallormsstað og lést 8. október 2002.
Foreldrar hennar voru Böðvar Ingvarsson frá Koti á Rangárvöllum, verkstjóri, f. þar 29. ágúst 1893, d. 26. desember 1981 og kona hans Ólafía Halldórsdóttir frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja, f. þar 8. ágúst 1894, d. 11. maí 1988.

Börn Ólafíu og Böðvars:
1. Ásdís Böðvarsdóttir, f. 11. ágúst 1919, d. 21. apríl 1925.
2. Ólafía Dóra Böðvarsdóttir, f. 3. mars 1921, d. 12. september 1921.
3. Ásta Böðvarsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1922, d. 1. ágúst 1993. Maður hennar Halldór Sigmar Guðmundsson.
4. Marta Sigríður Böðvarsdóttir, f. 4. júní 1924 á Grímsstöðum, d. 20. september 2002.
5. Guðmundur Ármann Böðvarsson, f. 19. júlí 1926 á Hallormsstað, d. 5. febrúar 2005. Kona hans Jóna Þuríður Bjarnadóttir.
6. Ásdís Böðvarsdóttir húsfreyja á Djúpavogi, f. 28. mars 1928 á Hallormsstað, d. 8. október 2002. Maður hennar Þórður Snjólfsson.
7. Aðalheiður Dóra Böðvarsdóttir, f. 28. maí 1929 á Hallormsstað, d. 27. október 2003.
8. Hilmar Böðvarsson, f. 16. janúar 1931 í Vallanesi, d. 4. nóvember 2017. Kona hans Sæbjörg Jónsdóttir.
9. Bergþór Reynir Böðvarsson, f. 15. maí 1934 á Ásum, d. 19. nóvember 2013. Kona hans Sigurlaug Vilmundardóttir, látin.

Ásdís var með foreldrum sínum í æsku.
Hún eignaðist barn með Björgvini 1948.
Þau Þórður giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Markarlandi 3 á Djúpavogi.
Ásdís lést 2002 og Þórður 2010.

I. Barnsfaðir Ásdísar var Björgvin Magnússon frá Ingunnarstöðum í A.-Barð., vélstjóri, f. 5. september 1925, d. 21. júní 2015.
Barn þeirra:
1. Sigmar Ægir Björgvinsson sjómaður í Hafnarfirði, f. 14. júní 1948 á Ásum. Kona hans Ingileif Arngrímsdóttir.

II. Maður Ásdísar var Þórður Snjólfsson, f. 15. júlí 1922, d. 24. febrúar 2010. Foreldrar hans voru Snjólfur Stefánsson bóndi í Veturhúsum í Hamarsdal, f. 22. september 1873, d. 4. mars 1957, og kona hans Ásdís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 26. ágúst 1884, d. 29. júlí 1971.
Börn þeirra:
2. Ásdís Þórðardóttir, f. 23. nóvember 1954.
3. Ólafur Böðvar Þórðarson, f. 21. júlí 1956.
4. Linda Heiðrún Þórðardóttir, f. 12. janúar 1961.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.