Ása Pálsdóttir (Sunnuhvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. febrúar 2018 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. febrúar 2018 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ása Pálsdóttir frá Sunnuhvoli, gjaldkeri í Reykjavík fæddist 21. júní 1914 á Sunnuhvoli og lést 20. júní 1984.
Foreldrar hennar voru Páll Ólafsson verslunarstjóri, f. 13. júli 1875 í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, drukknaði við Landeyjasand 10. ágúst 1923, og kona hans Katrín Gísladóttir frá Juliushaab, húsfreyja, f. 20. janúar 1875 í Juliushaab, d. 6. apríl 1962.

Börn Katrínar og Páls:
1. Gísli Pálsson, f. 1. júlí 1906 á Hrauni, d. 5. janúar 1908.
2. Ragnhildur Pálsdóttir skrifstofukona, f. 1. nóvember 1907 á Sunnuhvoli, d. 30. júlí 1989.
3. Guðrún Pálsdóttir, f. 10. febrúar 1909 á Sunnuhvoli, d. 20. apríl 1922.
4. Gísli Pálsson málari í Reykjavík, f. 13. október 1910 á Sunnuhvoli, d. 29. maí 1979.
5. Ása Pálsdóttir gjaldkeri, f. 21. júní 1914 á Sunnuhvoli, d. 20. júní 1984.

Ása var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en faðir hennar drukknaði, er hún var á níunda aldursári.
Hún var með móður sinni, enn 1934, en þær fluttust til Reykjavíkur.
Hún giftist ekki, en hélt heimili með móður sinni og Ragnhildi systur sinni á Rauðarárstíg 28. Móðir hennar lést 1962.
Ása var gjaldkeri hjá Borgarspítalanum, vann á Slysavarðstofunni.
Hún lést 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.